Viljayfirlýsing um safn Nínu Tryggvadóttur

Menning og listir

""

Reykjavíkurborg fær listaverkasafn Nínu Tryggvadóttur að gjöf og setur á fót safn í nafni hennar samkvæmt viljayfirlýsingu.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag viljayfirlýsingu á milli Reykjavíkurborgar og hjónanna Unu Dóru Copley og Scott Jeffries um að sett verði á fót listasafn  sem beri nafn Nínu Tryggvadóttur.

Reykjavíkurborg þiggur að gjöf listaverkasafn Unu Dóru Copley, erfingja Nínu og Alcopley, og Scott Jeffries, eiginmans Unu Dóru. Um er að ræða vel á annað þúsund listaverk eftir Nínu Tryggvadóttur, Alcopley og nokkur listaverk eftir samtímamenn þeirra.

Auk þess felur viljayfirlýsingin í sér að Una Dóra og Scott arfleiða Reykjavíkurborg að fasteignum sínum á Manhattan og í Reykjavík.

Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Reykjavíkurborg setja á fót safn sem ber nafn Nínu Tryggvadóttir og skal það verða sjálfstæð eining, með sjálfstæðri stjórn og framkvæmdastjóra. Í safninu munu verða fastasýningar á verkum Nínu auk annarrar fjölbreyttrar starfsemi á sviði myndlistar. Stefnt er að því að finna safninu stað í Hafnarhúsinu.

Á fundi borgarráðs í morgun var því einnig samþykkt að veita borgarstjóra heimild til að undirrita viljayfirlýsingu á milli Reykjavíkurborgar og Faxalóahafna um kaup á eignarhlut þeirra í Hafnarhúsinu. Miðað skal við að 2/3 hlutar þess rýmis sem keypt verður af Faxaflóahöfnum verði nýttir undir safn Nínu Tryggvadóttur.

“Þetta er stórmerkilegur viðburður í íslenskri menningarsögu og frábært að fá tækifæri til að flytja Nínu aftur heim. Gjöf þeirra Unu Dóru og Scott er  höfðingleg og ég efast ekki um að Reykjavíkurborg mun gera allt til að sýna Nínu Tryggvadóttur þá virðingu sem hún á skilið. Með þessari einstöku gjöf skapast jafnframt tækifæri til að gera Hafnarhúsið að listamiðstöð sem á eftir að auðga menningarlíf Íslendinga enn frekar,” segir Sigurður Björn Blöndal formaður borgarráðs.

Aðilar viljayfirlýsingarinnar gefa sér ríflega eitt ár til þess að ganga frá endanlegum samningum um fyrirkomulag gjafarinnar og stofnun safnsins.