Vegna skýrslu borgarskjalavarðar

Stjórnsýsla

""

Vegna frétta um skýrslu borgarskjalavarðar sem kynnt var á fundi borgarráðs í morgun vill Reykjavíkurborg koma eftirfarandi á framfæri.

Ábendingar í skýrslu borgarskjalavarðar eru samhljóða skýrslu innri endurskoðanda um Nauthólsveg 100.

Þegar hefur verið brugðist við niðurstöðum og ábendingum skýrslunnar. Vinnu við innleiðingu er annað hvort lokið, stendur yfir eða er í viðeigandi ferli.  

Eftirfarandi skref hafa verið tekin.

1. Hafin er innleiðing nýs og öflugs upplýsingastjórnunarkerfis sem leysir af hólmi eldra skjalakerfi sem var í notkun á þeim tíma er skýrslan nær til.

2. Sett hefur verið sérstakt fjármagn á fjárfestingaráætlun til að minnsta kosti næstu fimm ára í átak í skjala- og upplýsingastjórnun.

3. Á síðasta ári urðu umtalsverðar breytingar á skipulagi borgarinnar sem bæði skýra, skerpa og útvíkka umboð þjónustu- og nýsköpunarsviðs varðandi skjalastýringu hjá stofnunum borgarinnar.

4. Skjalamál hafa verið færð inn í nýstofnaða gagnaþjónustu borgarinnar sem gefur þeim enn frekara vægi en áður og undirstrikar mikilvægi skjala sem gagna.

5. Borgarskjalasafn tilheyrir nú þjónustu- og nýsköpunarsviði sem styttir boðleiðir og gerir safninu kleift að hafa bein áhrif á högun skjalastýringar þar sem borgarskjalavörður á nú sæti í framkvæmdastjórn sviðsins.

Því hefur verið brugðist við skýrslu borgarskjalavarðar með viðeigandi hætti.

Skýrsla borgarskjalavarðar um skjalastjórn

Umsögn þjónustu- og nýsköpunarsviðs