Unnið að viðgerðum á húsnæði Korpuskóla yfir páskana

Skóli og frístund

""

Unnið verður að viðgerðum á húsnæði Korpuskóla um páskana en skoðun á húsnæðinu leiddi í ljós ýmsar skemmdir sem nauðsynlegt er að bregðast við til að tryggja heilnæmi skólahúsnæðisins.

Samráð hefur verið haft við starfsfólk og foreldra nemenda í Fossvogsskóla vegna framkvæmdanna en nýverið var ákveðið að flytja starfsemi skólans tímabundið í húsnæði Korpuskóla sem hefur staðið ónotað. Ekki næst að ljúka öllum viðgerðum áður en skólastarf hefst á ný eftir páskafrí og því verður sérstök áhersla lögð á að klára það sem snýr að íverurými nemenda og starfsfólks.

EFLA verkfræðistofa annast eftirlit með framkvæmdunum og hefur skilað til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar lista yfir staði í húsnæðinu sem leggja þarf sérstaka áherslu á í viðgerðunum. Hér er um að ræða skemmdir á gólfdúk og í veggjum; bæði múr- og gifsveggjum, og rakaskemmda vaskaskápa. Ummerki um raka fundust í loftum auk þess sem EFLA gerir athugasemdir við frágang á gluggum, hurðum og í kringum niðurföll. Búið er að taka 18 sýni úr byggingarefnum á svæðum þar sem er óvissa ríkir um ástandið. Búið er að greina öll sýnin og hafa 7 verið með mygluvexti í byggingarefnum en 11 þeirra án myglu. Beðið er eftir niðurstöðum úr 6 sýnum í viðbót..

Vegna nýjustu sóttvarnaraðgerða fer vinna iðnaðarmanna fram í sóttvarnarhólfum í Korpuskóla. Framkvæmdir munu halda áfram eftir páska við þau atriði sem EFLA telur hægt er að vinna á meðan starfsemi er í húsnæðinu og að lokum verður farið í frekari viðgerðir í sumar sem eingöngu er hægt að vinna eftir að skólaárinu lýkur.

Meiri þekking og reynsla hefur skapast á undanförnum misserum hvernig tekist er á við rakaskemmdir en umræða og þekking um raka í húsum hefur verið vaxandi. Til marks um það var á fundi borgarráðs 11. mars sl. samþykkt að koma upp meginverkferli innan borgarinnar þegar grunur vaknar um hugsanlegar rakaskemmdir eða léleg loftgæði í húsnæði sem hýsir starfsemi borgarinnar.

Næstu skref í málinu er að á þriðjudaginn kemur mun Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur taka út húsnæði Korpuskóla og munu fulltrúar EFLU jafnframt vera á staðnum. Sérstakir upplýsingafundir vegna framkvæmdanna í Korpuskóla verða haldnir á þriðjudag með þátttöku EFLU, annars vegar með starfsfólki Fossvogsskóla og hins vegar með foreldrum.