Undirskriftasöfnun samþykkt

Stjórnsýsla Skipulagsmál

""

Beiðni um undirskriftarsöfnun vegna atkvæðagreiðslu um Stekkjarbakka Þ73 var samþykkt af borgarráði í morgun.

Borgarráð hefur samþykkt erindi Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins um fyrirhugaða undirskriftasöfnun samkvæmt 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga með þeim fyrirvara að undirskriftarsöfnunin og íbúakosningin fjalli ekki um lögformlegt gildi deiliskipulagsins fyrir Stekkjarbakka Þ73, þar sem slíkt stenst ekki lög.

Þann 19. desember síðastliðinn barst Reykjavíkurborg erindi stjórnar Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins um fyrirhugaða undirskriftasöfnun í Reykjavík en í tilkynningu frá Hollvinasamtökunum kemur fram að ætlunin sé að "knýja fram íbúakosningu um deiliskipulagið fyrir Stekkjarbakka, sem borgarstjórn samþykkti 19. nóvember s.l. og auglýst var í Stjórnartíðindum 25. nóvember s.l."

 Í 2. gr. reglugerðar nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum kemur fram að tilkynna skal sveitarstjórn ef fyrirhuguð er undirskriftasöfnun í sveitarfélaginu þar sem óskað er eftir almennri atkvæðagreiðslu um tiltekið mál er varðar sveitarfélagið. Erindið barst Reykjavíkurborg innan þess tíma sem veittur er og er því lagt til að fyrirhuguð undirskriftasöfnun verði samþykkt.

Í erindi Hollvinasamtakanna kemur fram að hugsun samtakanna er sú að deiliskipulag Stekkjarbakka verði fellt úr gildi í íbúakosningu. Eins og fram kemur í umsögn skrifstofu borgarstjórnar stenst það ekki lög. Deiliskipulag verður ekki fellt úr gildi með íbúakosningu. Deiliskipulagið hefur þegar öðlast lögformlegt gildi og verður aðeins breytt með endurskoðun á því í samræmi við málsmeðferðarferla í skipulagslögum og að viðlagðri bótaábyrgð Reykjavíkurborgar. Atkvæðagreiðsla gæti hins vegar snúist um það að Reykjavíkurborg myndi hefja endurskoðun á deiliskipulagi, að virtum þessum málsmeðferðarreglum og hugsanlegri bótaábyrð.

Ekkert er því þannig til fyrirstöðu að fram fari undirskriftarsöfnun og íbúakosning án þess að hún sé beinlínis tengd við þá stjórnvaldsákvörðun sem þegar hefur verið tekin með samþykkt og gildistöku