Umsækjendur um starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
Menning og listir Mannlíf
Alls sóttu 45 aðilar um starf verkefnastjóra EFA. Síðar drógu 7 umsækjendur umsóknir sínar til baka.
Starf verkefnastjóra EFA var auglýst laust til umsóknar á vef Reykjavíkur þann 26. apríl sl. Degi síðar var starfið auglýst á atvinnusíðum Fréttablaðsins og Morgunblaðsins. Umsóknarfrestur var tilgreindur til og með 12. maí sl.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin (EFA) verða veitt í Hörpu í desember 2020. Verkefnið er viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar og er hátíðin haldin í nánu samstarfi og samráði við Evrópsku kvikmyndaakademíuna.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1988 í Vestur – Berlín en tilgangur þeirra er að fagna, styðja við og vekja athygli á evrópskri kvikmyndagerð.
Búast má við að hátíðin laði til sín fjölmarga erlenda gesti víða að úr kvikmyndaheiminum en til stendur að vera með fjölmarga hliðarviðburði sem tengjast kvikmyndum og kvikmyndagerð.
Verkefnastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna vinnur að undirbúningi hátíðarinnar í samráði við stjórn verkefnisins og Evrópsku kvikmyndaakademíuna.
Umsækjendurnir eru:
Aðalheiður Dögg Finnsd. Helland |
Framkvæmdastjóri |
Anna Katrín Guðmundsdóttir |
Verkefna- og viðburðastjóri |
Arnbjörn Ólafsson |
Forstöðumaður |
Ása Fanney Gestsdóttir |
Menningarstjórnandi |
Ásmundur Jónsson |
Framkvæmdastjóri og útgefandi |
Ásta Sól Kristjánsdóttir |
Framkvæmdastjóri |
Berglind Rún Torfadóttir |
Virkniþjálfi |
Birna Hafstein |
Formaður Félags íslenskra leikara |
Bryndís Pjetursdóttir |
Verkefnastjóri |
Carolina Salas Munoz |
Framleiðandi og verkefnisstjóri |
Desirée Dísa Ferhunde Anderiman |
Verkefnastjóri |
Elva Guðrún Gunnarsdóttir |
Efnahags- og viðskiptafulltrúi |
Erna Ýr Guðjónsdóttir |
Ljósmyndari |
Greipur Gíslason |
Ráðgjafi |
Grímur Atlason |
Verkefnastjóri |
Guðný Káradóttir |
Ráðgjafi |
Guðrún Helga Jónasdóttir |
Dagskrárstjóri heimildamynda/Verkefnastjóri |
Halldór Gunnlaugsson |
Viðskiptafræðingur |
Heiðrún Þráinsdóttir |
Svæðisstjóri |
Hjörtur Grétarsson |
Framkvæmdastjóri |
Inga Björk Sólnes |
Kvikmyndagerðarkona |
Ingi Thor Jónsson |
Viðburðastjóri |
Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson |
Sviðlistamaður og listrænn framleiðandi |
Jónína Sigríður Pálsdóttir |
Verkefnastjóri |
Kolbrún K Halldórsdóttir |
Leikstjóri |
Linda Björk Sumarliðadóttir |
Verkefnastjóri |
Lovísa Óladóttir |
Framkvæmdastjóri |
Marta Monika Kolbuszewska |
Rekstrarstjóri |
Ottó Davíð Tynes |
Heimspekingur |
Óðinn Albertsson |
Verkefnisstjóri MPM, IPMA-C |
Ragnheiður Elín Árnadóttir |
Fv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra |
Rúrí Sigríðardóttir Kommata |
Þjónustufulltrúi og aðstoðarsýningastjóri |
Sandra Stojkovic Hinic |
Verkefnastjóri |
Sigríður Agnes Jónasdóttir |
Deildarstjóri viðburða |
Sigríður Inga Þorkelsdóttir |
Markaðsfulltrúi |
Sigrún Gréta Heimisdóttir |
Innanhúsarkitekt |
Sigurður Kaiser Guðmundsson |
Framkvæmdastjóri og sviðshönnuður |
Svanhildur Sif Halldórsdóttir |
Yfirritstjóri |