Ummyndanir á auglýsingaskjám um alla borg

Auglýsingahlé - Haraldur Jónsson

Dagana 1.-3 janúar 2024 verður  Auglýsingahlé á öllum auglýsingaskjám Billboard á höfuðborgarsvæðinu en þeir eru rúmlega 500 talsins. 

Auglýsingahlé er samstarfsverkefni Billboard, Y gallerýs og Listasafns Reykjavíkur. Verkefnið er frábær vettvangur fyrir myndlist í  almenningsrými og er því ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina. Er þetta í þriðja sinn sem listsýning Billboard á sér stað en síðastliðið haust var líkt og áður efnt til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými. Í ár var listamaðurinn Haraldur Jónsson  valinn til að sýna verkið Ummyndanir:



Verkið hverfist um ummyndanir kunnuglegra fyrirbæra úr tíðarandanum sem líða síkvikar um loftið þegar heimurinn er tímabundið opinn í báða enda um áramót.  Það er skuggsjá sem ofin er úr brotakenndum skilaboðum, hnitum, hugljómunum og óvæntum tilboðum úr undirvitundinni.



Að sýningartíma loknum verður verkið gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur.