Tíu áramótabrennur í Reykjavík

Heilbrigðiseftirlit Íþróttir og útivist

""

Í Reykjavík verða 10 áramótabrennur með svipuðu sniði og undanfarin ár.

Byrjað verður að hlaða í kestina miðvikudaginn 27. desember. Best er að fá hreint timbur á brennurnar. Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig er fenginn afgangur af jólatréssölunni. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn.  Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar verða á vettvangi við flestar brennurnar og leiðbeina þeim sem koma með efni.  Hætt verður að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12.00 á gamlársdag. 

Eldur verður borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld á öllum stöðum með tveimur undantekningum.  Á Úlfarsfelli er tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30. 

Brennurnar  eru á eftirtöldum  stöðum (skoða á korti):

1) Við Ægisíðu, lítil brenna.

2) Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48 - 52,  lítil brenna (tendrað kl. 21.00, eftir blysför sem hefst kl. 20.30).

3) Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.

4) Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18,  lítil brenna.

5) Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi, stór brenna.

6) Við Suðurfell, lítil brenna.

7) Við Rauðavatn að norðanverðu, stór brenna.

8) Gufunes við Gufunesbæ, stór brenna.

9) Við Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.

10) Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna (tendrað kl. 15.00)

Upplýsingasíða á vef Reykjavíkurborgar > Áramótabrennur   

Tengt efni: