Til móts við framtíðina - Öskudagsráðstefna í uppsiglingu

Skóli og frístund

""

Árleg fagráðstefna grunnskólakennara verður haldinn á öskudag 18. febrúar. Yfirskrift hennar að þessu sinni er Til móts við framtíðina – um fagmennsku og virðingu kennarastarfsins.

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni eru dr. Anna Kristín Sigurðardóttir dósent við Menntavísindasvið HÍ og dr. Toby Salt breskur ráðgjafi um forystu og þróun í skólastarfi. Síðari hluti ráðstefnunnar er tileinkaður umræðum um fagmennsku og virðingu kennarastarfsins.



Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica hóteli við Suðurlandsbraut og hefst kl. 13:00. Kennarafélag Reykjavíkur, Skólastjórafélag Reykjavíkur og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar standa að ráðstefnunni. Ráðstefnustjóri er Sigríður Heiða Bragadóttir skólastjóri Laugarnesskóla.

Dagskrá

Setning: Iðunn Pála Guðjónsdóttir, kennari í Háaleitisskóla.

Tónlistaratriði: Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts, undir stjórn Snorra Heimissonar.

Ávarp: Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs Rvk.

The Teaching Profession – Leading the Future

Dr. Toby Salt sérfræðingur hjá Ormiston Academies Trust í Bretlandi og fyrrum ráðgjafi skólayfirvalda um forystu og þróun.

Þetta er allt á valdi kennarans: Staðreynd eða goðsögn?

Dr. Anna Kristín Sigurðardóttir dósent við Menntavísindasvið HÍ.

Kaffihlé.

Umræður kennara í hópum.             

Hér má lesa ýmsar greinar og skoða myndbönd sem gerð voru fyrir ráðstefnuna þar sem ungir og aldnir tjá sig um kennarastarfið.