Þorgrímur Þráinsson borgarlistamaður Reykjavíkur 2013

Mannlíf Menning og listir

""

Á þjóðhátíðardeginum 17. júní útnefndi Jón Gnarr borgarstjóri Þorgrím Þráinsson rithöfund borgarlistamann Reykjavíkur 2013. Útnefningin fór fram í Höfða og gerði Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs grein fyrir vali ráðsins á borgarlistamanni. Við þetta tækifæri var listamanninum veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzosóprankona og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari fluttu tvö lög.

Þorgrímur Þráinsson er einn af afkastamestu og vinsælustu barna og unglingabókahöfundum landsins. Til marks um vinsældir hans má nefna að á fimm mínútna fresti, allt árið um kring, er bók eftir Þorgrím fengin að láni á bókasafni, miðað við útlán og upplýsingar Bókasafnssjóðs.  Hann hefur átta sinnum hlotið verðlaun fyrir barna- og unglingabækur. Margt býr í myrkrinu og Nóttin lifnar við voru kjörnar ,,bestu barnabækur aldarinnar” í vali á Bók aldarinnar sem Bókasamband Íslands stóð fyrir í apríl 1999. Bækurnar höfnuðu í 5. og 6. sæti á lista yfir 100 bestu bækur aldarinnar en alls átti höfundurinn sjö bækur á þeim lista.

Reykjavík er á meðal sex Bókmenntaborga UNESCO og eitt helsta markmið hennar sem slíkrar er að efla áhuga allra ungmenna á lestri og skapandi skrifum. Þorgrímur er jákvæð og góð fyrirmynd fyrir reykvísk ungmenni og hefur unnið ötullega að því að efla bóklestur og bókmenntaáhuga. Hann  hefur gegnum tíðina lesið úr bókum sínum og haldið erindi fyrir þúsundir skólabarna. Síðastliðna tvo vetur hefur hann heimsótt nánast alla grunnskóla landsins og haldið fyrirlestra fyrir nemendur í 10. bekk í boði Pokasjóðs, undir yfirskriftinni Láttu drauminn rætast. Á nýliðnum vetri hélt hann 175 fyrirlestra um allt land – skólum að kostnaðarlausu. Veturinn  2012-2013 stóð Þorgrímur fyrir því að láta útbúa veggspjöld sem fólu í sér hvatningu til að lesa meira. Var þeim dreift í flesta skóla á landinu, íþróttahús, sundlaugar og bókasöfn.

Haustið 2012 gaf Þorgrímur öllum landsmönnum ókeypis aðgang að átta bóka sinna sem var hægt að hlaða niður af emma.is – og var gjöfin kynnt í öllum skólum landsins. Nemendum gafst þar með kostur á að lesa bækurnar á rafrænu formi, minnka og stækka letur eftir hentugleika – sem kemur sér vel fyrir þá sem glíma við lestrarerfiðleika.

Þorgrímur var þekktur knattspyrnumaður og blaðamaður þegar hann sendi frá sér sína fyrstu bók, Með fiðring í tánum, haustið 1989. Síðan hafa komið út eftir hann fjölmargar bækur fyrir börn og unglinga sem flestar hafa notið mikilla vinsælda. Hann á óvenju fjölbreyttan feril að baki, spennusögur, ævintýri, raunsæissögur og síðan heimspekilegri verk eins og Ertu Guð, afi? Að auki hefur hann ritað stórvirkið Sögu Vals í 100 ár.

Þorgrímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980. Hann stundaði frönskunám í Sorbonne háskóla í París 1983-1984 og sótti tíma í heimspeki í HÍ 2011-2012.

Þorgrímur starfaði sem ritstjóri Íþróttablaðsins frá 1985 til 1997 og var samtímis blaðamaður hjá Frjálsu framtaki, síðar Fróða og skrifaði fyrir flestöll tímarit fyrirtækisins. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar árið 1996 og gegndi starfinu til 2004. Síðan þá hefur hann unnið sjálfsstætt sem blaðamaður, fyrirlesari og rithöfundur.