Þjónustumiðstöð Breiðholts flytur
Þjónustumiðstöð Breiðholts er flutt frá Álfabakka 12 en fór þó ekki lengra en í næsta stigagang eða í Álfabakka 10 svo þjónustan er enn í Mjódd.
Í nýju húsnæði, sem er á annari hæð, í Álfabakka 10 verður öll almenn þjónusta við íbúa hverfisins. Þarna er hægt að sækja um þjónustu, fá ráðgjöf og almennar upplýsingar.
Verið velkomin í nýtt og betra húsnæði að Álfabakka 10