Styrkir úr húsverndunarsjóði

Umhverfi Menning og listir

""

Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar auglýsir eftir árlegum umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.

Opið verður fyrir aðgengi að umsóknum frá 8. febrúar klukkan 13.00 og til 1. mars klukkan 23.59

Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:

  1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
  2. Tímaáætlun.
  3. Kostnaðaráætlun.
  4. Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.

Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 15-17 og í síma 411 6333 á sama tíma.

Eingöngur er tekið við umsóknum á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á rafrænni Reykjavík; http://rafraen.reykjavik.is.

Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað verður fyrir árið 2021 og verða ekki nýttir fyrir lok árs 2022 falla niður.

Meira um húsverndurnarsjóð Reykjavíkurborgar