Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn
- Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum
- Tímaáætlun
- Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða umfangsmiklar framkvæmdir)
- Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til
Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum kl. 15-17. Sími: 411 6333. Einnig má senda tölvupóst á minjavarsla@reykjavik.is.
Umsóknir eru eingöngu mótteknar á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.
Opnað var fyrir aðgengi að umsóknum þann 8. febrúar 2023 en lokað verður þann 1. mars 2023, kl. 23:59.
Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað verður 2023 og verða ekki nýttir fyrir lok árs 2024 falla niður.