Stígagerð og undirgöng undir Litluhlíð

Samgöngur Skipulagsmál

""

Gatnagerð og lagnavinna hefst í aprílmánuði við Litluhlíð í Hlíðahverfinu. Ný undirgöng og stígar verða gerðir undir Litluhlíð og götunni breytt. Litlahlíð verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja meginhluta framkvæmdartímans.

Framkvæmdin felur í sér gerð göngu- og hjólastígs um undirgöng undir Litluhlíð þar sem akreinum fækkar um eina og endurnýjun stofnlagna vatns-, hita-, raf- og fráveitu. Einnig er gert ráð fyrir gróðursvæðum, landmótun, lýsingu við götu, stíga og í undirgöngum, umferðarljósum, skiltum og merkingum.

Framkvæmdasvæðið mun ná frá gatnamótum Litluhlíðar og Bústaðavegar, norður að Eskitorgi og frá göngu- og hjólastígum sem lagðir voru á síðasta ári, að Skógarhlíð.

Þetta er samstarfsverkefni Reykjavíkurborg, Veitna og Vegagerðar. Verktaki er Háfell ehf. og hönnun er unnin af VSÓ Ráðgjöf.

Göngu- og hjólastígur

Hér er um að ræða framhald á lagningu göngu-og hjólastígs sem kominn er meðfram Bústaðavegi og mun svo halda áfram eftir Skógarhlíð.

  • Gerð verða undirgöng fyrir gangandi og hjólandi undir Litluhlíð ásamt tengingu stíga við Eskitorg og Bústaðaveg.
  • Gerður verður göngu- og hjólastígur sem tengir stíga sem komnir eru við Bústaðaveg við Skógarhlíð.
  • Til að undirgöngin verði sem styst verður önnur akbraut Litluhlíðar, þ.e. sú eystri, þrengd í eina akrein og miðeyja mjókkuð.
  • Umferðaröryggi gönguleiðar yfir Bústaðaveg verður bætt með því að stýra umferð sem tekur hægribeygju frá Bústaðavegi inn í Litluhlíð með umferðarljósum.
  • Sett verður lýsing við götu, stíga og í undirgöngum.
  • Breyting verður á umferðarljósum ásamt skiltun og merkingum.
  • Veitur endurnýja stofnæðar hitaveitu, vatnsveitu, frárennsli og raflagnir á svæðinu.
  • Frágangur umhverfisins með gróðursvæðum og landmótun.

Framhald af verki frá liðnu ári

Þessi framkvæmd er áframhald á verki frá síðasta ári, þar sem lagðar voru nýir göngu- og hjólastígar frá Veðurstofuvegi að Litluhlíð. Á næstu misserum er fyrirhugað að halda áfram með gerð stíga eftir Skógarhlíð.

Reykjavíkurborg og Veitur hafa sent íbúum í 113 og hagsmunaaðilum upplýsingapóst um framkvæmdina.

Tengill

Framkvæmdasjá Reykjavíkurborgar Litlahlíð.

Framkvæmdasjá Veitna Litlahlíð