Starfsáætlun skóla- og frístundasviðs 2015 er komin út. Í henni er lögð áhersla á fimm umbótaþætti sem unnið verður að á árinu.
Umbótaþættirnir fimm eru:
- Málþroski, læsi og lesskilningur;
- Verk-, tækni- og listgreinar;
- Lýðræði, jafnrétti, mannréttindi;
- Fjölmenning;
- Gæði og fagmennska.
Starfsáætlunin er gefin út í vefviðmóti á Reykjavíkurvefnum þar sem hægt er að nálgast ítarefni tengt umbótaþáttunum og í prentvænni útgáfu.