Starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs laust til umsóknar

Loftmynd frá Borgartúni.
Loftmynd frá Borgartúni

Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Leitað er að öflugum og framsæknum leiðtoga til að leiða málaflokkinn inn í spennandi tíma.

  • Skóla- og frístundarsvið ber ábyrgð á skipulagi, rekstri og þjónustu leikskóla, grunnskóla, frístundarheimila og félagsmiðstöðva og hefur umsjón með daggæslu í heimahúsum. Jafnframt heyrir rekstur skólahljómsveita og eins tónlistarskóla undir sviðið.

Markmið sviðsins er að veita börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða skóla- og frístundarþjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð barna að leiðarljósi. Þjónusta sviðsins snertir rúmlega 22 þúsund börn og fjölskyldur þeirra. Fjöldi starfsfólks á sviðinu er um sex þúsund.

Launakjör sviðsstjóra heyra undir ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Sviðsstjóri heyrir beint undir borgarstjóra og um störf hans gilda reglur um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Ráðið er í starf sviðsstjóra af borgarráði til fimm ára í senn.

Nánari starfslýsing og umsókn

Umsóknarfrestur til og með 8. desember nk.

Umsjón með ráðningu hefur ráðningastofan Intellecta. og eru umsækjendur hvattir til að sækja um starfið á heimasíðu Intellecta, www.intellecta.is. Umsókninni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. 

Skipuð verður 3ja manna hæfisnefnd sem mun vinna úr öllum umsóknum í samráði við Intellecta. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran í netfanginu thelma@intellecta.is og Lóa Birna Birgisdóttir sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar í netfanginu loa.birna.birgisdottir@reykjavik.is.

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.