Spennandi samgönguvika framundan

Samgönguvika 2024

Sýning á gömlum reiðhjólum, málþing, samhjól, frítt í strætó, nýr hjólastígur. Þetta eru dæmi um góða viðburði sem verða í Evrópskri samgönguviku sem stendur yfir frá 16.-22. september en þema vikunnar er Almannarými – virkir ferðamátar

Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis, - orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi. 

Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Reykjavíkurborg hefur alltaf tekið virkan þátt í samgönguvikunni í góðu samstarfi við önnur sveitarfélög og samtök. Hún hvetur borgarbúa til að taka þátt.

16. september: Setning og hjólasýning 

  • Hjólasýning Reiðhjólabænda í samstarfi við Reykjavíkurborg verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhússins 16. september kl. 16 og verður hún opin alla daga Samgönguvikuna. Hátt í 40 reiðhjól verða sýnd. Á sýningunni verður breitt úrval af öðruvísi og áhugaverðum reiðhjólum frá ýmsum tímum. Þetta er fyrsta sýningin af þessu tagi sem haldin er á Íslandi. Ljósmyndir af hjólastígum sem Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa gert verða einnig til sýnis. Aðgangur er ókeypis og fólk er hvatt til að koma hjólandi eða gangandi á sýninguna. Gestir geta lagt hjólum sínum við innganga hússins eða í bílakjallara undir húsinu. 

18. september: Auðlindahringir, bíó og málþing 

  • Auðlindahringir er viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Rafstöðvarvegi kl. 17. 
  • Aðförin í öndvegi. Elliðaárstöð. Orka náttúrunnar og Veitur standa fyrir málþingi í hádeginu á Bístró við Elliðaárstöð þar sem umferð hjólandi og gangandi er einmitt í öndvegi. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi. 

19. september: Nýr göngustígur og PubQuiz

  • Opnun á nýjum göngu- og hjólastíg við Suðurhlíðar í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vegagerðar og Betri samgangna. 
  • Samgöngu PubQuiz á SnorraBar með Samtökum um bíllausan lífsstíl kl. 11. 

20. september: Umferðarþing

  • Umferðarþing – saman í liði. Samgöngustofa heldur Umferðarþing kl. 9:00-15:30 í Gamla Bíói, Ingólfsstræti 2a í Reykjavík. Þema: Ólíkir vegfarendahópar. Skráning 

21. september: Reykvíkingar og Seltirningar hjóla saman

  • Samhjól. Reykjavíkurborg og Seltjarnarnes leiða hesta sína saman og bjóða upp á hjólaferð fjölskyldunnar. Hist verður við kl. 11 við nýjan útsýnispall við JL húsið. 6 kílómetra Gróttuhringur verður hjólaður og þátttakendum boðið í sund, kaffi, djús og kleinur í lok ferðar. Viðburður á FB

22. september: Bíllausi dagurinn 

  • Bíllausi dagurinn. Frítt verður í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu.
  • Lokun á Garðsbraut á Húsavík fyrir bílaumferð. Fyrirlestur um öryggi barna í gatnahönnun. Norðurþing.

Heimasíða og annað gott

Reykjavíkurborg leggur metnað í að börn geti gengið í skólann sinn. Í Rimaskóla hefur verið keppt um gullskólinn í tengslum við Gengið í skólann verkefnið sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum stendur fyrir. .

Hvað ætlið þið að gera í Samgönguviku?