Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í borginni í dag, 25. nóvember, skv. mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Styrkur efnisins var einnig hár í gær. Klukkan 13:00 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 141,5 míkrógrömm á rúmmetra.
Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi.
Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra.
Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndunarvegi.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is.