Skýrsla um Elliðaárdal kynnt

Umhverfi Skipulagsmál

""
Skýrsla starfshóps um Elliðaárdalinn hefur verið birt á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Óskað er eftir ábendingum og athugasemdum um hana.

Skýrsla starfshópsins, sem skipaður var af Reykjavíkurborg, nefnist „Sjálfbær Elliðaárdalur – Stefna Reykjavíkur“.  Starfshópurinn vann að því  að móta tillögur að framtíðarsýn um eiginleika og eðli Elliðaárdals í ljósi þess að stofnaður var borgargarður í dalnum. Hægt er að kynna sér skýrsluna á vef Reykjavíkurborgar og eru áhugasamir hvattir til að senda inn ábendingar og athugasemdir við hana.
 
Starfshópurinn telur afar mikilvægt að Elliðaárdalurinn haldi því lykilhlutverki sínu að vera eitt af aðalútivistarsvæðum borgarinnar til framtíðar. Leggja skal áherslu á að gera svæðið aðgengilegt, aðlaðandi og áhugavert fyrir borgarbúa sem og aðra sem heimsækja dalinn.
 
Tillögurnar varða einstaka málaflokka svo sem skipulagsmál í dalnum, samgöngur, náttúrufar, laxveiðar, útivist og umhirðu en einnig er hugað að framtíð orkumannvirkja í dalnum og sérstaklega vikið að málefnum Toppstöðvarinnar. Jafnframt eru lagðar fram hugmyndir starfshópsins að nauðsynlegum aðgerðum í þessum helstu málaflokkum.
 
Áður en þessar tillögur hópsins verða lagðar fram til samþykktar borgaryfirvalda verða þær kynntar fyrir hagsmunaaðilum sem og almenningi og er öllum frjálst að skila umsögn eða athugasemdum um skýrsluna og innihald hennar. Litið er á tillögurnar sem drög sem geta tekið breytingum m.a. í kjölfar athugasemda frá umsagnaraðilum. Umsagnartíminn er í fjórar vikur eða til 27. maí.
 

Sjálfbær Elliðaárdalur - Stefna Reykjavíkur