Skóflustunga við Vesturbæjarskóla

Skóli og frístund

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og nemendur í Vesturbæjarskóla tóku í dag fyrstu skóflustungurnar að viðbyggingu við skólann sem tekin verður í notkun haustið 2017.

Með viðbyggingunni er verið að mæta þörf vegna aukins nemendafjölda og hefjast jarðvegsframkvæmdir síðar í þessum mánuði. Undirbúningur að framkvæmdum hefur staðið yfir síðustu vikur en færa þurfti til kennslustofur sem standa á lóð skólans. 

Nýja viðbyggingin verður 1.340 fermetrar og mun hún hýsa hátíðarsal, eldhús fyrir nemendur, sérkennslustofur og almennar kennslustofur. Á fyrstu hæð verður hátíðarsalur með aðstöðu fyrir skólahljómsveit og kennslustofur fyrir tónmennt. Salurinn tengist mötuneyti og verður einnig nýttur sem matsalur. Á annari hæð verða fjórar almennar kennslustofur og myndmenntastofa. Á þriðju hæðinni kemur náttúrufræðistofa og útisvæði með gróðurreitum þar sem hægt verður að rækta grænmeti. Um hönnun sáu Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar, Verkfræðistofan Viðsjá ehf og Mannvit. 

Auk viðbyggingar verða einnig gerðar breytingar á eldra húsnæði skólans, en bókasafn og tölvuver verða endurbætt. Þá verður frístundaheimili við Vesturvallagötu endurgert með tilliti til eldvarna og flóttaleiða. Áætlað er að taka viðbygginguna í notkun haustið 2017. 

Áframhaldandi jarðvegsframkvæmdir vegna viðbyggingarinnar hefjast fljótlega og verður vinnusvæðið afmarkað á næstu dögum. Eins og búast má við verður eitthvert rask vegna framkvæmda og þarf að loka hluta gatna. Til að bæta aðstöðu barna og stækka leiksvæði þeirra verður Vesturvallagata lokuð tímabundið milli Hringbrautar og Ásvallagötu. Til að bæta aðkomu að framkvæmdasvæði verður Framnesvegi breytt tímabundið í einstefnugötu til norðurs milli Hringbrautar og Sólvallagötu. Áætlað er að jarðvegsframkvæmdum ljúki í október og að tekið verði til við uppsteypu á næsta ári. Áætlaður heildarkostnaður vegna framkvæmda við viðbygginguna er 720 milljónir.