Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir fyrir börn

Covid-19 Velferð

""

Tekjulægri heimili geta nú sótt um sérstakan íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn, sem kemur til viðbótar hefðbundnum styrkjum, til dæmis þeim sem felast í Frístundakortinu. Styrkurinn er hluti af aðgerðapakka ríkisins sem ætlað er að veita mótvægi vegna áhrifa Covid-19-faraldursins.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum. Markmiðið er að jafna tækifæri barna til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Þá er hægt að nota til  niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistarnáms eða annarra tómstunda. 

Í Reykjavík annast Reykjavíkurborg afgreiðslu styrkumsókna. Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005–2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 krónur á mánuði á tímabilinu mars til júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 krónur á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Ýttu hér til að kanna hvort þitt barn getur fengið styrk. 

Á landsvísu verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti aðgerðina í vor og er hún hluti af aðgerðapakka sem ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu. Í framhaldinu verður ráðist í vitundarvakningu í samstarfi við menntamálaráðuneytið, sveitarfélög, Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands. Nánar má lesa um þetta á vef félagsmálaráðuneytis.