Samningur um nýja verknámsbyggingu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti

Skóli og frístund

""

Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson og mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifuðu í dag undir samning um viðbyggingu fyrir verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

Byggingin, sem verður tvær skemmur og tengingar, verður á lóð skólans við Hraunberg. Húsnæði skólans stækkar við þetta um 2.155 fermetra.  Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina, án innréttinga, er 1.058 milljónir króna.

Samningurinn var undirritaður við hátíðlega athöfn í skólanum þar sem auk borgarstjóra, ráðherra og skólameistara, Guðrúnar Hrefnu Guðmundsdóttur, tóku til máls sviðsstjórar í verknáminu. Þau fögnuðu öll því að ráðast ætti í byggingu verknámssmiðja og Kristín Reynisdóttir, sviðsstjóri listnáms sagði meðal annars: „Hér er fagnað í dag. Skörun listforma á sér stað og farvegur nýsköpunar er spennandi. Með nýrri byggingu verða tækifæri til að samnýta aðstöðu og vinna saman milli verkgreina.  Við hlökkum til að  aðlaga kennslu okkar að nýjum og betri aðstæðum.“

 Borgarstjóri og ráðherra eru sammála um að leitast verði við að hanna nýbyggingar á vistvænan hátt þannig að þær uppfylli skilyrði BREEAM vottunar í samræmi við Loftslagsáætlun Reykjavíkurborgar 2021-2025.  Stofnkostnaður við nýja byggingu skiptist þannig að ríkissjóður greiðir 60% en Reykjavíkurborg 40%.