Samið um uppbyggingu á Hlíðarendareit og aðgengi Borgarlínu

Borgarhönnun Borgarlínan

Skýringarmynd frá ALARK arkitektum ehf. sem sýnir fyrirhugaða uppbyggingu.
Skýringarmynd frá ALARK arkitektum ehf. sem sýnir fyrirhugaða uppbyggingu á A og J reitum á Hlíðarendasvæðinu. Teikning, loftmynd.

Samkomulag milli Knattspyrnufélagsins Vals, Hlíðarenda ses. og Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarráði í dag. Snýst það um fyrirhugaða uppbyggingu á lóðum við Arnarhlíð 3 og Hlíðarenda 14 en einnig áform um byggingu fjölnota íþróttahúss, endurbyggingu gervigrasvallar og eignayfirfærslu gervigrasvallar austan Arnarhlíðar til Reykjavíkurborgar. Þá felur samkomulagið í sér breytta landnotkun sem tryggir aðgengi Borgarlínu að svæðinu.

Samningurinn tekur í raun til breytinga á deiliskipulagi Hlíðarendareits hvað varðar uppbyggingu þeirra tveggja lóða sem þar standa nú eftir óbyggðar. Um er að ræða reiti A og J, eða Arnarhlíð 3 þar sem lóðarhafi er Hlíðarendi ses. og lóð við Hlíðarenda 14 þar sem lóðarhafi er Knattspyrnufélagið Valur. Samkvæmt samningnum verður lóðarhöfum heimilt að láta vinna á sinn kostnað deiliskipulag vegna lóðanna þar sem stefnt er að því að hafa annars vegar blandaða íbúðarhúsalóð og hins vegar hreina íbúðarhúsalóð. 

Í samræmi við samningsmarkmið Reykjavíkurborgar er samið um að á lóðunum verði 20% íbúða skilgreindar sem leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða hf., búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Sérstakt byggingarréttargjald verður ekki greitt vegna uppbyggingarinnar en þess í stað skuldbinda lóðarhafar sig til að ráðstafa ábatanum af henni til fjármögnunar á aðstöðu til íþróttaiðkunar á svæðinu. Verður í þeim efnum sérstaklega horft til uppbyggingar fjölnota íþróttahúss á Hlíðarenda sem knattspyrnufélagið Valur mun fjármagna, byggja og reka og mun það uppfylla þarfir allra þeirra greina sem iðkendur félagsins leggja stund á. 

Stefnt að því að borgin reki íþróttamannvirkin að Hlíðarenda 

Knattspyrnufélagið Valur mun endurbyggja og fjármagna gervigrasvöll vestan Arnarhlíðar á komandi ári, en Reykjavíkurborg mun endurgreiða kostnað við völlinn á árunum 2025 til 2027 og verður hann þá í eigu borgarinnar. Þá afhendir Knattspyrnufélagið Valur Reykjavíkurborg gervigrasvöll austan Arnarhlíðar til eignar, rekstrar og viðhalds frá upphafi komandi árs án sérstakrar greiðslu. Reykjavíkurborg og Knattspyrnufélagið Valur eru sammála um að samhliða undirritun samningsins verði sett af stað vinna við endurskoðun á eignarhaldi íþróttamannvirkja að Hlíðarenda með það að markmiði að Reykjavíkurborg taki yfir rekstur þeirra frá upphafi ársins 2025. 

Aðgengi Borgarlínu tryggt 

Samkomulagið kveður á um breytta notkun á lóð við Hlíðarenda 12 þannig að hún verði nýtt undir almenningssamgöngur, þar sem Borgarlína mun fara um Snorrabrautarás. Loks kveður samkomulagið á um uppgjör á framkvæmdakostnaði vegna gerðar göngustíga.

Loftmynd af Hlíðarendahverfi, séð frá Miklubraut.