Sagnahöfundar, ljóðskáld og upplesarar hlutu Íslenskuverðlaun unga fólksins
Skóli og frístund
Frú Vigdís Finnbogadóttir verndari Íslenskuverðlauna unga fólksins afhenti verðlaun ársins í Hörpu í dag á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember.
Hvatning til framfara í tjáningu og rituðu máli
Þetta er í sextánda sinn sem Íslenskuverðlaunin, sem eru á vegum skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, eru veitt í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Verðlaununum er ætlað að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu í töluðu og rituðu máli.
Að þessu sinni fengu 50 nemendur og einn bekkur í 29 grunnskólum verðlaun en alls hafa rúmlega 981 nemendur eða nemendahópar verið tilnefndir til verðlaunanna frá upphafi. Allir grunnskólar í borginni geta tilnefnt nemendur eða nemendahópa, einn á hverju skólastigi. Meðal verðlaunahafa voru ungir, áhugasamir lestrarhestar, framúrskarandi upplesarar, nemendur með annað móðurmál en íslensku sem náð hafa góðum tökum á íslensku á skömmum tíma, vinnuhestar, sagnahöfundar og ljóðskáld.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hefur oftast verið viðstödd afhendinguna og veitti verðlaunin í ár í Norðurljósasal Hörpu. Verðlaunahafar fengu viðurkenningarskjal með undirritun Vigdísar Finnbogadóttur og bókina Ljóðaúrval með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar í samantekt Böðvars Guðmundssonar.
Frú Vigdís Finnbogadóttir og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, formaður skóla- og frístundaráðs ávörpuðu samkomuna og skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar lék fyrir gesti undir stjórn Inga Garðars Erlendssonar.
Nefnd um verðlaunin er skipuð Mörtu Guðjónsdóttur fulltrúa í skóla- og frístundaráði, sem er formaður, Kristínu Jóhannesdóttur fyrir hönd skólastjóra, Soffíu Vagnsdóttur og Ólöfu K. Sívertsen fyrir hönd grunnskólahluta fagskrifstofu.
Eftirtaldir nemendur hlutu verðlaun að þessu sinni;
Austurbæjarskóli
Michael Angelo Pari
Sól Björnsdóttir
Dagur Thors
Álftamýrarskóli
Bjartur Haralds
Ártúnsskóli
Bjartmar Lindberg Indriðason
Borgaskóli
Hassan Adebowale Salami
Breiðholtsskóli
Valgerður Hjartardóttir
Styrmir Þór Blöndal
Dalskóli
Aníta Marín Magnúsdóttir
Kjalvör Brák Reynisdóttir
Heiðrún Hjaltadóttir
Engjaskóli
Kría Dögg Haraldsdóttir
Stefanía Ósk Þórhallsdóttir
Fellaskóli
Alicja Paciejewska
Katrín Kristinsdóttir
Katla Dögg Kristinsdóttir
Foldaskóli
Guðlaugur Heiðar Davíðsson
Fossvogsskóli
Karítas Harðardóttir
Hjörtur Þór Skúlason
Hagaskóli
Matthías Pálmason Skowronski
Hamraskóli
Embla Rakel Daníelsdóttir
Xian Carl Gabiana
Háteigsskóli
Lóa Margrét Hauksdóttir
Hlíðaskóli
Bjarni Bergþórsson
Hólabrekkuskóli
Eydís Jónína Sigurðardóttir
Kacper Robert Kaca
Malak Moneer Fathel Alnethary
Húsaskóli
Tómas Ingi Davíðsson
Stefanía Gyða Rafnsdóttir
Klébergsskóli
Karítas Maísól Frantzdóttir
Dagbjört Freyja Gígja
Jómundur Atli Bjarnason
Landakotsskóli
Katrín Embla Júlíudóttir
Katla Sturludóttir Hamar
Sveindís Eir Steinunnardóttir
Laugalækjarskóli
Sindri Björn Baldursson
Ingunn Eyja Skúladóttir
Melaskóli
Lilja Émilie Moschetta
Norðlingaskóli
Ylfa Sigrún N. Wilbinsdóttir
Benedek Oláh
Ragna Björk Snæbjörnsdóttir
Rimaskóli
Tristan Fannar Jónsson
Selásskóli
5. bekkur
Seljaskóli
Ísak Gunnar Jónsson
Steinunn María Matthíasdóttir
Helga Lilja Eyþórsdóttir
Sæmundarskóli
Sigrún Hrafnhildur Bridde
Rósar Magnússon
Óskar Breki Bjarkason
Tjarnarskóli
Ingibjörg Ellý Herbertsdóttir
Víkurskóli
Christian Frosti Guerreiro
Vogaskóli
Embla Hrönn Halldórsdóttir
Ölduselsskóli
Elísabet Ólafsdóttir