Ríflega tveggja milljarða króna styrkur til sporlausrar jarðhitanýtingar

Umhverfi

""

Orkuveita Reykjavíkur ásamt samstarfsaðilum hefur hlotið ríflega tveggja milljarða króna styrk úr Horizon 2020 Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB.

Styrkurinn er til verkefnisins GECO, sem miðar að sporlausri nýtingu jarðhita. OR leiðir þetta samstarfsverkefni 18 fyrirtækja og stofnana víðs vegar að úr Evrópu. Markmið GECO, sem stendur fyrir Geothermal Emission Control, er að þróa jarðhitavirkjanir með sem allra minnsta losun koltvíoxíðs (CO2) og brennisteinsvetnis (H2S). Það byggir að stórum hluta á CarbFix-niðurdælingaraðferðinni sem þróuð hefur verið við Hellisheiðarvirkjun undanfarinn áratug í samstarfi við Orku náttúrunnar og innlendar og erlendar rannsóknastofnanir.

Gengið var frá formsatriðum varðandi styrkinn nú fyrir helgi og á næstu dögum mun OR auglýsa eftir sérfræðingum til að vinna að verkefninu.

Gróðurhúsalofti breytt í grjót

CarbFix-aðferðin, stundum nefnd Gas í grjót, felst í að leysa koltvíoxíð og brennisteinsvetni upp í vatni og dæla þeim djúpt niður í basaltberglögin við Hellisheiðarvirkjun. Þar losna efni úr basaltinu sem bindast lofttegundunum og mynda stöðugar steintegundir, t.d. silfurberg og glópagull, innan tveggja ára. CO2 og H2S er þannig steinrunnið í berggrunninum til frambúðar. Þessi aðferð er ódýrari en hefðbundnar hreinsunaraðferðir á þessu jarðhitalofti og leiðir til langtímabindingar þess.

Steinrenning prófuð í margskonar bergi

Með GECO verkefninu verður CarbFix aðferðin þróuð enn frekar og henni beitt víðar. Auk Íslands verður hún prófuð á Ítalíu, í Tyrklandi og í Þýskalandi. Jarðhitalofti verður dælt niður í fjórar gerðir berggrunns til að prófa hvort ekki sé hægt að beita aðferðinni víðar en hér. Í verkefninu er mikil áhersla á umhverfisvöktun og að auka skilning á hegðun jarðhitalofttegunda til lengri og skemmri tíma eftir að þeim hefur verið dælt niður í berggrunn.

Tekjumöguleikar í hagnýtingu

Í GECO verkefninu verða einnig þróaðar aðferðir sem stuðla að hagnýtingu jarðhitalofttegunda. Unnið verður að enn umhverfisvænni og sparneytnari aðferðum við hreinsun koltvíoxíðs með hagnýtingu í huga og þannig auka tekjumöguleika við jarðhitanýtinguna. Lykill að því er að skilja lofttegundirnar CO2 og H2S algerlega að og verða slíkar aðferðir prófaðar við jarðhitavirkjanir Orku náttúrunnar, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun.

Í stuttu máli

Markmið GECO er að þróa sporlausa jarðhitanýtingu byggða á CarbFix verkefninu við Hellisheiðarvirkjun.

Verkefnisstjórn er í höndum Orkuveitu Reykjavíkur og verkefnisstjóri er dr. Bergur Sigfússon, jarðefnafræðingur og fagstjóri á Þróunarsviði OR.

 

GEORG, rannsóknaklasi í jarðhita mun sjá um daglegan rekstur verkefnisins.

 

Styrkþegar eru alls 18; orkufyrirtæki, háskólar og rannsóknastofnanir.

 

Íslenskir samstarfsaðilar: Orka náttúrunnar, Háskóli Íslands, ÍSOR og GEORG, rannsóknaklasi í jarðhita

 

 

 

Samstarfslönd utan Íslands: Frakkland, Ítalía, Spánn, Holland, Tyrkland, Bretland, Þýskaland og Noregur.

 

 

Verkefnið stendur í fjögur ár.

 

 

Heildarstyrkfjárhæð er 16 milljónir evra ≈ 2.065 milljónir króna.

 

 

Styrkur til OR: 3,2 milljónir evra ≈ 410 milljónir króna.

 

 

>Styrkur til annarra íslenskra þátttakenda: 2,6 milljónir evra ≈ 330 milljónir króna.