Reykvíkingur ársins Marta Wieczorek opnaði Elliðaárnar í morgun

Marta Wieczorek, Reykvíkingur ársins 2024 veiddi fyrsta lax sumarsins við opnun Elliðaána í morgun. Þetta er 60 sentimetra löng hryggna sem var veidd á Green Butt flugu.
Marta Wieczorek, Mieszkanka Reykjaviku roku 2024 złowiła dziś rano pierwszego łososia podczas otwarcia sezonu wędkarskiego na Elliðaá. Była to 60 centymetrowa ryba rodzaju żeńskiego złowiona na muchę Greenback.

Marta Wieczorek, grunnskólakennari í Hólabrekkuskóla í Breiðholti og aðstoðarskólastjóri við Pólska skólann, er Reykvíkingur ársins 2023. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, tilkynnti valið í morgun við opnun Elliðaánna en þetta er í fjórtánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.

Reykvíkingur ársins var útnefndur í fyrsta sinn árið 2011. Tilgangurinn er að leita að einstaklingi sem hefur, með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt og þakka fyrir hans framlag. 

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir tilkynnir val á Reykvíkingi ársins 2024 við veiðiskála í Elliðaánum og við hlið hennar stendur Marta

Vinnur í þágu barna í borginni

Marta Wieczorek vinnur dýrmætt og óeigingjarnt starf í þágu barna borginni sem kennari við Hólabrekkuskóla en hún hefur líka unnið á leikskóla og mótað fyrstu ár barna í hverfinu. Hún hefur jafnframt unnið ötullega við að efla móðurmálskennslu í Pólska skólanum í Reykjavík, sem var stofnaður árið 2008, þar sem lögð er áhersla á pólskukennslu samhliða því að veita mikilvægan stuðning fyrir tvítyngda nemendur á Íslandi. Nemendur sem stunda nám í Pólska skólanum efla ekki einungis sitt eigið móðurmál heldur eru betur í stakk búnir til að tileinka sér íslensku sem er undirstaða þess að vera virkur þátttakandi í íslensku samfélagi. Skólinn er því mikilvæg brú milli íslensks og pólsks samfélags, ekki bara fyrir börnin sem þangað sækja nám heldur einnig fyrir foreldra barnanna. Marta kennir einnig á íslenskunámskeiði fyrir börn sem eru nýkomin til Reykjavíkur. Námskeiðið er á vegum Suðurmiðstöðvar og fer fram í Fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi.

Menningarsendiherra í Breiðholti

Marta hefur einnig verið menningarsendiherra fyrir landið sitt í Breiðholti. Um er að ræða samfélagsverkefni mismunandi mál-, menningar- og/eða þjóðfélagshópa og Suðurmiðstöðvar. Menningarsendiherrar hafa það hlutverk að brúa bilið milli ólíkra þjóða og menningarheima í hverfinu með það að markmiði að virkja lýðræði, efla upplýsingaflæði og bæta tengslanet innan hverfisins.

Marta segir mikilvægt að hjálpa fólki að taka virkan þátt í því samfélagi sem það kýs að búa í. „Það er líka ánægjulegt að hitta allt það fólk sem lætur sér annt um að byggja upp í sameiningu og gera samlanda sína meðvitaða um að það að búa til lokaða menningar- og málhópa getur alið á óvild og fordómum og ýtt undir neikvæðar staðalímyndir. Miklu betri lausn er að kynnast hvert öðru og hafa gagnkvæman ávinning af því,“ segir hún.

Fagmanneskja fram í fingurgóma

Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla, segir Mörtu vera fagmanneskju fram í fingurgóma. „Hún setur nemendur sína alltaf í fyrsta sæti og leitar leiða til að laða það besta fram í öllum. Marta er jákvæður leiðtogi sem fer fjölbreyttar leiðir í kennslu til að allir nemendur nái að nýta sína styrkleika. Við erum heppin í Hólabrekkuskóla að hafa Mörtu í okkar flotta starfsmannahópi. Hún er fagleg, nemendamiðuð og jákvæð í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur“, segir Lovísa Guðrún.

Reykvíkingur ársins var að vonum ánægður með titilinn. „Útnefningin kom mér mjög á óvart. Það er virkilega ánægjulegt að fá viðurkenningu fyrir starfið sitt og þetta mun örugglega hvetja mig áfram, en þetta væri ekki mögulegt án skilningsríkrar fjölskyldu og ég er mjög þakklát fyrir hennar stuðning,“ segir Marta.

Reykvíkingur ársins fær lax í Elliðaánum og nýtur aðstoðar tveggja starfsmanna SVFR

Reykvíkingur ársins opnaði svo Elliðaárnar í boði borgarstjórans í Reykjavík og Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft umsjón með ánum í 84 ár. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, ræddi við Mörtu um kennarastarfið og starf hennar í Suðurmiðstöð. Því næst var boðið upp á hressingu í veiðihúsinu við ána.

Við óskum Mörtu innilega til hamingju með útnefninguna!