Reykvíkingur ársins 2019 er Helga Steffensen

Mannlíf Íþróttir og útivist

Helga Steffensen ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur formanni borgarráðs

Helga Steffensen, eigandi og leikstjóri Brúðubílsins, hefur verið valinn Reykvíkingur ársins.

Þetta er í níunda sinn sem borgarstjóri óskar eftir tilnefningum frá borgarbúum að Reykvíkingi ársins en Jón Gnarr tók upp þennan sið í sinni tíð sem borgarstjóri. Helga Steffensen var tilnefnd og valinn Reykvíkingur ársins 2019 en hún hefur rekið brúðuleikhús fyrir yngstu kynslóðina í tugi ára. Hún hóf rekstur Brúðubílsins árið 1980 og hefur verið að í 40 ár. Ein allra vinsælasta persóna Brúðubílsins er apinn Lilli sem hefur verið með Helgu í Brúðubílnum frá upphafi. Helga hefur fengið fálkaorðuna fyrir störf sín við brúðuleikhús fyrir börn.

„Ég er uppalin í Reykjavík og er stolt af borginni minni og því að vera valinn Reykvíkingur ársins. Þetta er mikill heiður fyrir mig og Lilla,“ sagði Helga í morgun þegar tilkynnt var um valið við opnun Elliðaánna. Sú hefð hefur myndast að borgarstjóri býður Reykvíkingi ársins að vera fyrstur til að renna fyrir lax í ánum. Helga lét sig ekki muna um það að ganga út á brúnina á Sjávarfossi og var kominn með lax á færið eftir um fimmtán mínútur. Hún naut dyggrar aðstoðar Ásgeirs Heiðars leiðsögumanns við veiðina. Hún rotaði Maríulaxinn sinn sjálf og át síðan veiðiuggann af honum og fannst það skemmtilegur siður. Helga fagnar 85 ára afmæli síðar í sumar og kvaðst vel geta fengið veiðibakteríuna nú þegar hún væri komin með Maríulaxinn á land. „Þetta var alveg einstök lífsreynsla,“ sagði hún um laxveiðina.  

Helga segir Brúðubílinn alltaf vera jafn vinsælan. Hún fer um alla borg með sýningar og býr til eina til tvær nýjar sýningar á hverju ári. „Við reynum að fara í öll hverfi borgarinnar á sumrin og sýnum á völdum stöðum. Í dag erum við til dæmis með sýningu í Hamravík í Grafarvogi. Þetta er búið að vera gott sumar því sólin hefur skinið á okkur. Stundum erum við með tvær sýningar á dag en hver sýning er um hálftími að lengd,“ segir hún.

Eftir að Helga landaði sínum laxi fór Dagur B. Eggertsson og renndi í fossinn og var óðar kominn með lax á færið. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs fékk einnig vænan lax í Sjávarfossi.

Að minnsta kosti fimm laxar voru komnir á land úr Elliðaánum fyrir kl. 10 í morgun og var talsvert líf í strengjum og hyljum ánna eftir rigninguna í gær.