Reykjavíkurborg styrkir sex borgarhátíðir

Menning og listir Mannlíf

""

Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur valið sex borgarhátíðir Reykjavíkur sem hljóta samstarfssamning við borgina og styrk næstu þrjú árin en þær eru: Hinsegin dagar – Reykjavík Pride, Hönnunarmars, Iceland Airwaves, RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, Myrkir músíkdagar og Reykjavík Dance Festival.

Hlutverk borgarhátíða er meðal annars að efla menningu og mannlíf í Reykjavík en þær þurfa jafnframt að uppfylla ýmis önnur skilyrði, svo sem að vera aðgengilegar og sýnilegar, vera með alþjóðlega tengingu og uppfylla kröfur um fagmennsku og gæði.

Við val á hátíðunum hafði ráðið til hliðsjónar umsögn fimm manna faghóps, skipað fulltrúum frá Bandalagi íslenskra listamanna, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum verslunar og þjónustu, auk tveggja fulltrúa menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Í ferlinu var unnið eftir reglum um borgarhátíðir sem samþykktar voru í borgarráði í sumar.

Hinsegin dagar – Reykjavík Pride, Hönnunarmars, Iceland Airwaves og RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hljóta 10 milljónir króna hver á ári, og hafa þær allar verið borgarhátíðir undanfarin þrjú ár. Í greinargerð faghóps segir að þær séu mikilvægur hlekkur í fjölbreyttri menningu og mannlífi borgarinnar og styrkja því ímynd Reykjavíkur sem lifandi menningarborgar. Þær hafi því sýnt og sannað að þær eigi fullt erindi til að vera borgarhátíðir áfram.

Myrkir músíkdagar og Reykjavík Dance Festival,  hljóta fimm milljónir króna hvor og eru þær nýjar í hópi borgarhátíða. Í greinargerð faghópsins segir um Myrka músikdaga að hátíðin hafi alltaf verið framsækin og ögrandi og hafi skipt sköpum fyrir íslensk tónskáld. Í umsögn um Reykjavík Dance Festival segir meðal annars að hátíðin sé mikilvægur vettvangur fyrir sjálfstæða dansara og danshöfunda og að hún hafi verið vel sótt undanfarin ár.

Auk stuðnings í formi beinna styrkja hafa borgarhátíðir í Reykjavík, undanfarin misseri, hlotið stuðning menningar- og ferðamálasviðs til að kynna sig betur, svo sem með fánum hátíðanna í miðborginni. Verður sá stuðningur veittur áfram, auk þess sem þróaðir verða fleiri samstarfsfletir borgarhátíða við Reykjavíkurborg.

Nú stendur yfir yfirferð á öðrum umsóknum um styrki úr menningarsjóði borgarinnar og verður úthlutun kynnt undir lok árs en allt í allt eru hátt í 140 milljónir til úthlutunar á næsta ári, ef með eru taldar borgarhátíðir Reykjavíkur, samstarfssamningar sem í gildi eru og úrbótasjóður tónleikastaða sem nýlega var upplýst um úthlutanir úr.