Reykjavíkurborg slítur vinaborgasamstarfi og segir upp samstarfssamningi við Moskvu

""

Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í morgun að slíta vinaborgasamstarfi við Moskvu, á grundvelli samstarfssamnings sem í gildi hefur verið milli borganna frá árinu 2007.

Borgarstjóri átti fund með borgarstjóra Lviv þann 20. apríl sl. og sendiherra Úkraínu á Íslandi þann 16. júní sl. þar sem þessi mál voru rædd. Í framhaldi af umræðum í borgarráði sl. vor hefur borgarstjóri fundað með utanríkisráðherra um málið og utanríkisráðuneytið gerir ekki athugasemdir við tillögu um slit á vinaborgasamstarfi.

Minnt skal á að borgarstjórn sendi frá sér eftirfarandi einróma ályktun vegna innrásarinnar í Úkraínu þann 1. mars sl.:

"Borgarstjórn Reykjavíkur fordæmir harðlega innrás Sambandslýðveldisins Rússlands í Úkraínu og lýsir samstöðu og stuðningi við fólkið í Úkraínu. Borgarstjórn skorar á ríkisstjórn Rússlands að draga hersveitir sínar til baka, lýsa yfir vopnahléi og koma á friði þegar í stað. Innrásin í Úkraínu er ólögleg og ómannúðleg – og með henni er friður í Evrópu rofinn. Borgarstjórn lýsir samstöðu með Kyiv, Kharkiv, Kherson og öðrum úkraínskum borgum og landsvæðum sem nú sæta árásum. Jafnframt lýsir borgarstjórn samstöðu með íbúum sem neyðast til að flýja heimili sín eða berjast varnarbaráttu við ofurefli. Innrás sem þessi gengur gegn öllum gildum borgarstjórnar Reykjavíkur og hvetjum við því ríkisstjórn Íslands og stjórnir vinaríkja til að taka á móti flóttafólki og veita allan þann stuðning sem þarf til að hjálpa úkraínsku þjóðinni að komast í gegnum þessar hörmungar. Reykjavíkurborg mun ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum og lýsir sig tilbúna til að taka á móti fólki á flótta."
 

Að ráðgjöf borgarlögmanns verður leitað viðbragða borgarstjórnar Moskvu áður en slit, á vinaborgasamstarfi og ofangreindum samningi, verða formlega orðin.