Reykjavíkurborg hefur rift samningi um uppbyggingu í Vesturbugt

Loftmynd af lóð á Vesturbugt

Samningi frá 2017 á milli Vesturbugtar ehf. og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu í Vesturbugt við Gömluhöfnina í Reykjavík hefur nú verið rift vegna vanefnda lóðarhafans að efna samninginn. Áformað er að bjóða lóðirnar út að nýju í haust. 

Samningurinn um uppbyggingu á tveimur lóðum í Vesturbugt var undirritaður eftir forval og keppnisviðræður og á grundvelli tilboðs félagsins árið 2017. Í samningnum fólst fyrst og fremst að Reykjavíkurborg seldi félaginu byggingarrétt á lóðunum Hlésgötu 1 og Hlésgötu 2, þar sem heimilað var í samræmi við deiliskipulag að byggja allt að 18.400 fermetra húsnæði ofanjarðar auk bílakjallara og geymslna. Miðað var við að íbúðir yrðu allt að 176 og atvinnuhúsnæði um 1.665 fermetrar. 

Vesturbugt ehf. bauð í tilboði sínu að greiða fyrir lóðirnar og byggingarréttinn með því að afhenda Reykjavíkurborg kvaðalaust um 74 íbúðir í húsunum og 170 bílastæði í bílakjallara. 

Félagið hefur ekki hafið framkvæmdir, og allir umsamdir frestir Vesturbugtar ehf. til að byggja á lóðunum liðnir.  

Vegna þessara vanefnda hefur Reykjavíkurborg því rift samningnum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu á lóðunum og afturkallað úthlutun til félagsins á lóðinni Hlésgötu 1. 

Nú er í undirbúningi lítilsháttar endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir Vesturbugt. Reykjavíkurborg áformar að lóðirnar verði boðnar út að nýju í haust.