Rekstur Reykjavíkurborgar lakari vegna Covid-19

Stjórnsýsla Fjármál

""

Sex mánaða árshlutareikningur Reykjavíkurborgar var afgreiddur í borgarráði í dag.

Aðstæður sem skapast hafa vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafa leitt til þess að afkoma A-hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar verður lakari en fjárhagsáætlun 2020 gerði ráð fyrir. Kórónuveirufaraldurinn hefur haft þau áhrif að tekjur hafa dregist saman en útgjöld aukist.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var því neikvæð um 3.111 mkr.  Rekstrarniðurstaðan skýrist einkum af lægri skatttekjum og lægri tekjum af sölu byggingarréttar en áætlanir gerðu ráð fyrir. 

„Reykjavíkurborg sér nú skýr merki um heimsfaraldurinn í fjárhagsuppgjöri fyrstu sex mánaða. Þyngst vegur tekjusamdráttur vegna atvinnuleysis og minni umsvifa í efnahagslífinu. Áberandi tekjufall er einnig hjá Strætó og Faxaflóahöfnum. Hins vegar hafa aukin útgjöld fylgt viðbrögðum við Covid-19. Rekstur málaflokka hefur að öðru leyti gengið vel. Niðurstöðurnar eru í ágætu samræmi við sviðsmyndir og spár fjármálasviðs borgarinnar frá því í vor og undirstrika að standa þarf með sveitarfélögum við núverandi aðstæður enda bera þau uppi lykil grunnþjónustu í samfélaginu,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var neikvæð um 4.504 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir talsvert betri afkomu.

Lakari rekstrarniðurstöðu samstæðunnar má einkum rekja til áhrifa lækkaðs álverðs og gjaldfærslu gengismunar vegna veikingar krónunnar frá áramótum hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok júní 724.530 milljónir króna en heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 378.064 milljónir króna. Eigið fé var 346.466 milljónir króna. Þar af var hlutdeild meðeigenda 18.859 milljónir króna.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er nú 47,8% en var 49,9% um síðustu áramót.