Rekstrarniðurstaða samstæðu jákvæð um 11 milljarða

Stjórnsýsla Fjármál

""

Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2019 var lagður fram í borgarráði í dag og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn 5. maí næstkomandi. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 11.199 m.kr.

Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2019 var lagður fram í borgarráði í dag og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn 5. maí næstkomandi. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 11.199 m.kr. en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 11.991 m.kr. Þá var rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 1.358 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 3.572 m.kr. á árinu.

Óvissa framundan

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir þessa niðurstöðu sterka en framundan séu erfiðir tímar. „Þessi niðurstaða sýnir öðru fremur sterkan fjárhag borgarinnar eftir síðasta ár. Við höfum verið að malbika, leggja nýja hjólastíga, byggja nýja grunnskóla, ný íþróttamannvirki í austurborginni en um leið leggja áherslu á góða þjónustu. Þessi niðurstaða er því gott veganesti inn í þær efnahagslegu þrengingar sem við erum að sigla inn í núna í kjölfar Covid-19. Borgin mun geta tekið á sig umtalsverðan kostnað vegna Covid-19 en ef sveitarfélögin allt landið um kring eiga ekki að fara í niðurskurð á þjónustu þá þarf að koma yfirlýsing frá ríkinu um að það muni standa með sveitarfélögunum í gegnum þetta.“

Rekja má helstu frávik frá áætlun A- og B-hluta til 3.454 m.kr. hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. Þá skýrast frávik frá rekstrarniðurstöðu A-hluta einkum af 1.451 m.kr. lægri skatttekjum en áætlun gerði ráð fyrir og að tekjur af sölu byggingarréttar voru 3.753 m.kr. undir áætlun. Þá var annar rekstrarkostnaður 2.117 m.kr. yfir áætlun. Á móti kemur að launakostnaður var 2.738 m.kr. undir áætlun og aðrar rekstrartekjur voru 1.871 m.kr. yfir áætlun.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 930 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 4.047 m.kr. 
 

Sterkt eiginfjárhlutfall

Heildareignir samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 688.915 m.kr., heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 345.022 m.kr. og eigið fé var 343.893 m.kr. en þar af var hlutdeild meðeigenda 18.884 m.kr.  Eiginfjárhlutfall er nú 49,9% en var 49,4% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Þjóðarleikvangs ehf.

Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2019