Regnbogavottun til vinnustaða fyrir fræðslu um hinseginleika

Mannréttindi Mannlíf

""

VInnustaðir Reykjavíkurborgar geta nú fengið regnbogavottun að lokinni fræðslu um hinsegin málefni og eftir að þjónustan hefur verið rýnd í ljósi hinseginleika. 

Fræðslan byggir á ýmsum skemmtilegum verkefnum um hinseginleika en hún beinist einnig að því að skoða með hvaða hætti hver og einn vinnustaður geti verið hinseginvænni.

Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð samþykkti tillögu um Regnbogavottunina í nóvember 2019. Hún er liður í því að framfylgja mannréttindastefnu borgarinnar og tryggja að farið sé m.a. að lögum nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, en vottunin er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Regnbogavottun Reykjavíkurborgar byggir á sambærilegum vottunarferlum hjá t.d. Human Rights CampaignStonewall UK og RFSL í Svíþjóð þar sem skilyrði eru sett um að stefnur fyrirtækja nefni hinsegin fólk og að réttindi og jöfn staða hinsegin starfsfólks sé tryggð. Til þess að bæta starfsumhverfið sem og þjónustuna fyrir hinsegin fólk eru fræðslu um hinsegin málefni og ríkjandi viðmið í samfélaginu. Einnig er leitað leiða til að gera starfsemina hinseginvænni. Reykjavíkurborg uppfyllir ýmis skilyrði sem slík vottunarferli gera kröfu um, t.d. með því að hafa aðgerðamiðaða mannréttindastefnu og svo er lagaumhverfið á Íslandi þess eðlis að réttindi flestra hinsegin einstaklinga eru alla jafnan tryggð. Eftir stendur að bæta þarf þekkingu starfsfólks á mannréttindastefnunni, stöðu og réttindum hinsegin fólks og því hvernig starfsstaðir og þjónusta borgarinnar geti verið hinseginvænni. Regnbogavottun Reykjavíkurborgar er liður í því að bæta þar úr.

Vottunarferlið er þannig uppbyggt að starfsstaðir hafa sjálfir samband og óska eftir því, en allur starfsmannahópurinn þarf að taka þátt. Uppsetningin er eftirfarandi:

  • Spurningalisti og samtal við stjórnanda (fyrir fyrstu fræðslu)
  • Úttekt á rýminu, umhverfinu, vefsíðum og öðru efni eftir atvikum
  • Fræðslur fyrir allan starfsmannahópinn (4.5 klst í heild)
  • Upplýsingaefni/gátlistar fyrir starfsfólk
  • Fáni, lógó og plakat

Sérfræðingar í hinsegin og jafnréttismálum á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu annast Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Hægt er að hafa samband við þá í gegnum hinsegin@reykjavik.is.