Opnunartími leikskóla breytist

Skóli og frístund

""

Leikskólarnir verða opnir frá kl. 7:30 til 16:30 líkt og verið hefur í heimsfaraldrinum. 

Meirihluti skóla- og frístundaráðs samþykkti á fundi sínum í dag að opnunartími leikskóla borgarinnar verði frá kl. 07:30 til 16:30 hjá leikskólum borgarinnar frá og með 1. nóvember 2021. Samþykktin er í samræmi við tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs sem skilaði viðamikilli skýrslu á vordögum.

Frá upphafi heimsfaraldursins hefur opnunartími leikskólanna verið frá kl. 07:30 til 16:30 og hefur þorri foreldra dvalarsamning í samræmi við hann. Opnunartími skilgreindra leikskóla, eins til tveggja í hverju hverfi, verður eftir sem áður frá 7:30 til 17:00 frá og með næstu áramótum að því gefnu að aðstæður á tímum heimsfaraldurs leyfi það. Er þetta meðal annars gert til að mæta niðurstöðum jafnréttismats frá júní 2020.  

Foreldrar sem vilja sækja um að hafa barn sitt fram til kl.17.00 geta komið óskum sínum á framfæri við leikskólastjóra í leikskóla barns þeirra í september.  Sótt er um flutning á vala.is  

Komi til þess að eftirspurn eftir lengri dvalartíma verði umfram laus pláss fá þeir hópar foreldra forgang sem samkvæmt jafnréttismati má áætla að myndu eiga erfiðast með að bregðast við breyttum opnunartíma.

Sjá tillögu og greinargerð