Opnun Laugardalslaugar frestast

Unnið að viðgerð á heitu pottunum í Laugardalslaug
Viðgerðir á Laugardalslaug

Viðhaldsframkvæmdir í  Laugardalslaug ganga vel en allt útlit er fyrir að ekki verði unnt að opna laugina þann 10. október eins og fyrirhugað var.

Viðgerðir sem farið hefur verið í eru lagfæringar á laugarkeri, laugarbakka, sjópotti, lýsingu auk þess sem háþrýstiþvottur hefur gengið vel. Málningarvinna hefst í dag ef verður leyfir og nýjum kýraugum verður komið fyrir með nýjum ljósabúnaði en það mun auka öryggi gesta til muna.

Eftir stöðufund með þeim sam að viðgerðum koma er áætlað að opna Laugardalslaugina viku síðar eða þriðjudaginn 17. október.

Laugardalslaugin verður eins og ný að viðgerð lokinni.

Takk fyrir þolinmæðina, ágætu sundlaugargestir.