Ofbeldi ekki liðið á skemmtistöðum í Reykjavík

Borgarstjóri ásamt fulltrúum lögreglu, Neyðarlínu, slökkviliðs, ríkislögreglustjóra, ferðaþjónustunnar og skemmtistaða undirrita samninginn

Samkomulag um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði var undirritað í dag. Þetta er í fimmta sinn sem verkefnið er undirritað. Markmiðið samningsins er að skemmtistaðir í Reykjavík séu ofbeldislausir og öruggir, fyrir alla gesti og starfsfólk. 

Miðað er að því að tryggja samskipti og samstarf á milli aðila samkomulagsins, en það eru Reykjavíkurborg, Neyðarlínan 112, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök reykvískra skemmtistaða, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, embætti ríkislögreglustjóra og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. 

Með samkomulaginu er stefnt að því að fyrirbyggja allt mögulegt ofbeldi á skemmtistöðum. Ofbeldi í hvaða mynd sem er, er ekki liðið, þ.m.t.kynbundið ofbeldi, kynbundin og kynferðisleg áreitni, vændi og mansal, sem og ofbeldi sem byggist t.d.á rasisma og öðrum fordómum eða hatri, svo sem í garð innflytjenda eða hinsegin fólks.

Samkomulagið var fyrst undirritað árið 2016 og þá áttu 17 skemmtistaðir aðild að samkomulaginu í dag eru þeir 30 að tölu.

Teymi frá Reykjavíkurborg, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fara árlega í heimsókn á staðina til að kanna hvort þeir mæti þeim skilyrðum sem eru sett fram í samkomulaginu um örugga skemmtistaði og starfsfólk fær upplýsingar. Límmiðar með upplýsingum um að skemmtistaðurinn taki þátt í verkefninu eru afhentir og skulu þeir límdir upp á sýnilegum stöðum fyrir gesti staðarins. Myndavélar tryggja öryggi gesta og eru settar upp við salerni og við inngang skemmtistaða. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru vísbendingar um að ofbeldisbrotum sem eru tilkynnt inni á skemmtistöðum, sem eru aðilar að samkomulaginu, hafi fækkað. Með teyminu hafa boðleiðir orðið styttri, samskipti hafa aukist og betri skilningur er á milli allra aðila samkomulagins.

Skemmtistaðir sem vilja óska eftir aðild að verkefninu er bent á að senda tölvupóst á netfangið oryggi@reykjavik.is