No translated content text
Gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðahúsnæðis og innviða fyrir allt að 12.600 manns þegar hverfi við Elliðaárvog og á Ártúnshöfða verður að fullu endurgert. Fjöldi íbúða gæti orðið á bilinu 5.100 - 5.600.
Kynningarfundur um skipulag og uppbyggingu Elliðaárvogs og Ártúnshöfða verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 22. febrúar kl. 17.00–18.30 , í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Allir eru velkomnir.
Vistvænt borgarhverfi með fólk í fyrirrúmi
Björn Guðbrandsson hjá Arkís segir að uppbygging Elliðaárvogs-Ártúnshöfða búi yfir fjölmörgum eiginleikum vistvænnar byggðar, enda hafi áherslur í hönnun verið að skapa vistvænt borgarhverfi með fólk í fyrirrúmi. Rammaskipulag fyrir svæðið var unnið í samstarfi Arkís, Landslags og Verkís.
„Að stærstum hluta er um að ræða land sem þegar hefur verið raskað; athafnasvæði sem gengur í gegnum endurnýjun og umbreytist í blandaða byggð,“ segir Björn, en hann er meðal þeirra sem segja frá hverfinu á kynningarfundinum á morgun. Hann segir að lögð hafi verið áhersla á að skapa hverfi sem er þétt og fjölbreytt, bjóði upp á þjónustu og atvinnumöguleika innan hverfis og er tengt hágæða almenningssamgöngukerfi. Uppbyggingin mun tengjast nýrri borgarlínu á samgönguás frá vestri til austurs.
Björn segir að hverfið njóti einstakra umhverfisgæða og tenginga við útivistarstíga. Ennfremur gerir skipulagið ráð fyrir fjölbreyttum borgarrýmum og útivistarsvæðum sem eru tengd neti göngu- og hjólastíga.