Nýtt fimleikahús Gróttu

Íþróttir og útivist

""

Nýtt fimleikahús Gróttu og endurbætt íþróttamiðstöð Seltjarnarness var formlega opnuð í dag en húsið er samstarfsverkefni Seltjarnarnesbæjar og Reykjavíkurborgar.

Opnunin hófst með fimleikasýningu þar sem að 160 fimleikabörn á öllum aldri sýndu listir sýnar á sama tíma. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hélt hátíðarávarp ásamt Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi og Guðjóni Rúnarssyni formanni fimleikadeildar Gróttu.

Í árslok 2016 undirrituðu þau Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstóri og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri samstarfssamning á milli Seltjarnanesbæjar og Reykjavíkurborgar um að standa sameiginlega að stækkun íþróttaaðstöðu Gróttu til að bæta aðstöðu til fimleikaiðkunar.

Samstarfssamningurinn Seltjarnarnesbæjar og Reykjavíkurborgar fól í sér að sveitarfélögin tvö myndu standa sameiginlega að rekstri fimleikadeildar Gróttu og mun Reykjavíkurborg greiða leigu á fimleikaaðstöðunni fyrir iðkendur sem búsettir eru í Reykjavík en um 80% iðkenda búa í Reykjavík. Leigusamningurinn er til 20 ára með ákvæði um framlengingu á 5 ára fresti.

Tæp tvö ár eru frá fyrstu skóflustungunni að stærri og endurbættri íþróttamiðstöð og nú iðar nýtt og endurbætt hús af lífi. Iðkendur hafa aldrei verið fleiri hjá Íþróttafélaginu Gróttu eða um 1200.

Mikil ánægja ríkir með endurbætur íþróttamiðstöðvarinnar og glænýja fimleikaaðstöðu sem er öll hin fullkomnasta sem og vel heppnað samstarfsverkefni Seltjarnarnesbæjar og Reykjavíkurborgar.