Nýr ungbarnaleikskóli á Skólavörðuholti

Skóli og frístund

""

Ungbarnaleikskóli fyrir 60 börn verður settur upp í færanlegu húsnæði á lóð Vörðuskóla við Barónstíg.

Borgarráð samþykkti síðastliðinn fimmtudag tillögu um að setja upp færanlegt húsnæði við Vörðuskóla fyrir ungbarnaleikskóla og var málið kynnt á fundi skóla – og frístundaráðs í dag.

Gert er ráð fyrir að leikskólinn verði um 600 fermetrar og að hann verði tekinn í notkun á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Hann verður starfræktur í fjórum deildum fyrir börn frá 12 mánaða til 30 mánaða aldurs.

Þessi áform eru liður í Brúum bilið aðgerðaáætlun borgarinnar um fjölgun leikskólaplássa. Markmiðið er að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, mæta barnafjölgun og stóraukinni þörf fyrir vistun yngri barna. 

Áætlaður stofnkostnaður við nýja færanlega leikskólann á Skólavörðuholtinu og skólalóð er 95 milljónir og árlegur leigukostnaður á húsnæði 32,4 milljónir króna.

Leikskólinn verður svokölluð Ævintýraborg og á skilgreindum byggingarreit þar sem í fyllingu tímans stendur til að reisa viðbyggingu við Vörðuskóla.