Nýr hjólabrettagarður á Miðbakkanum

Umhverfi Mannlíf

""

Miðbakkinn í Reykjavík verður formlega opnaður fyrir sumarið þegar nýtt hjólabrettasvæði verður tekið í notkun klukkan 17 í dag, föstudaginn 5. júní. Hjólabrettagarðurinn er hannaður af Eika Helgasyni, sem er atvinnumaður á snjóbretti og hefur haft hjólabrettið sem áhugamál og lífsstíl frá því seint á tíunda áratuginum. Vígsla hjólabrettagarðsins er liður í formlegri opnun Sumarborgarinnar Reykjavíkur sem fram fer í dag.

Eiki hannaði hjólabrettagarðinn og smíðaði allar grindurnar á Akureyri þar sem hann er búsettur. Hann mætti suður með afraksturinn  á flutningabíl og hefur unnið að því síðustu daga að setja garðinn upp. „Það eru fleiri skeitarar búnir að mæta að hjálpa til. Það eru allir mjög peppaðir að fá þetta í gang,“ segir Eiki en einn af þeim sem hefur hvað mest hjálpað honum er bróðir hans, Halldór Helgason, sem er líka brettagoðsögn. Eiki hefur reynslu af því að setja upp og hanna hjólabrettagarð en hann var einmitt að opna einn slíkan á Akureyri.

Eiki segir spenning ríkja fyrir nýja hjólabrettagarðinum á Miðbakkanum hjá samfélagi hjólabrettafólks. Svæðið bjóði upp á fjölmarga möguleika og eigi að geta tekið við nokkrum fjölda fólks. „Við erum búnir að vera að prófa þetta og þetta svínvirkar,“ segir hann um garðinn.

Hann segir hjólabrettaiðkun vera meiri list heldur en íþrótt. „Allir mæta til að hafa gaman. Þetta er lífsstíll. Það eru engar landsliðstreyjur í þessu sporti. Þú ert bara þú sjálfur.“

Hann býst við góðri mætingu þegar hjólabrettagarðurinn verður formlega opnaður klukkan 17 á í dag. Viðveru hjólabrettafólks sem og annarra er fagnað og verður gaman að sjá Eika og félaga taka fyrstu bunurnar í nýja hjólabrettagarðinum.

Miðbakkinn stimplaði sig rækilega inn sem áfangastaður í miðborginni síðastliðið sumar.  Núna í sumar verður áfram líf og fjör á Miðbakkanum, því auk hjólabrettasvæðisins er þarna körfuboltavöllur og aðstaða fyrir fólk til að koma saman, dvelja og njóta samveru.

Sumarborgin lifnar við

Sumarborgin 2020 er farin að taka á sig mynd. Borgin er í rólegheitum að færast í sumarbúninginn. Verið er að gera borgina græna og fallega með sumarblómum þannig að hún verður blómlegri með hverjum deginum.

Búið er að setja upp borð og stóla á vegum Reykjavíkurborgar á völdum stöðum í miðborginni.

Rekstraraðilar eru enn fremur búnir að færa sig í meira mæli út en áður og er það hluti af því að gera sumarborgina líflega og styðja við mannlífið.

Borðtennisborð sem komin eru upp á Bernhöftstorfu og á Miðbakkanum eru skemmtileg nýjung í ár.

Það er nóg um að vera í dag því klukkan 11 verða sumargöturnar formlega opnaðar og lengist þar með  göngugötusvæðið í sumar. Borgarstjóri Dagur B. Eggertsson heiðrar síðan eldhuga í umhverfismálum klukkan 13.

Dansað á Arnarhóli

Sumarborgin er ekki aðeins hjólabrettaborg heldur líka dansborg því Kramhúsið og Reykjavíkurborg bjóða upp á danshlaðborð víða um miðborgina í sumar.  Fyrsti tími sumarsins verður við róluvöllinn á Arnarhóli klukkan 12.10 á föstudag. Þar mun Þórdís Nadía leiða mjaðmahreyfingarnar við taktfasta tónlist. Tíminn er ókeypis og öllum opinn.

Hægt verður að fylgjast með sumarviðburðunum á borginokkar.is.