![""](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/myndir_frettir/frettamyndir_2014_febjuli/dji_0156.jpg?h=096a58f0&itok=ESJHyK2d)
Breytingar verða gerðar á austasta hluta Kleppsmýrarvegar og gatnamótum við Kjalarvog. Á Gelgjutanga verða einnig lagðar nýjar götur, Bátavogur og Stefnisvogur, í tengslum við nýjar byggingarlóðir.
Framkvæmdir hefjast í næstu viku og verður aðkomu að hafnarsvæðinu beint um Brúarvog. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát við framkvæmdasvæðið og huga að merktum hjáleiðum.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember.
Nánari upplýsingar á upplýsingasíðu í framkvæmdasjá: Kleppsmýrarvegur – Bátavogur – Stefnisvogur.