Nýir stjórnendur hjá Reykjavíkurborg

Heilbrigðiseftirlit Skipulagsmál

Brynjar Þór Jónasson og Tómas G. Gíslason

Tveir nýir stjórnendur eru komnir til starfa hjá umhverfis-og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Ráðið hefur verið í starf byggingarfulltrúa og í starf framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. 

Brynjar Þór Jónasson er nýr byggingarfulltrúi Reykjavíkur

Brynjar er með viðamikla starfsreynslu bæði á sviði stjórnunar, bæði rekstri og mannauðsmálum sem og af skipulags- og byggingarmálum. Hann er húsasmíðameistari með diplómagráðu í byggingariðnfræði með BSc. gráðu í byggingafræði frá Háskólanum í Reykjavík, MSc. gráðu í skipulagsfræðum frá Landbúnaðarháskóla Íslands, viðbótadiplóma í opinberri stjórnsýslu 2019 og er að ljúka MPA gráðu frá Háskóla Íslands. Brynjar er jafnframt með löggildingu mannvirkjahönnuða. Síðastliðin ár hefur hann starfað sem sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Seltjarnarnesbæjar og sem slíkur hefur hann borið ábyrgð á skipulags- og byggingamálum, umhverfismálum, rekstri eignasjóðs, rekstri veitustofnana Seltjarnarnesbæjar og þjónustumiðstöðvar.

Tómas G. Gíslason er nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Tómas er með B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu frá RMIT University í Melbourne, Ástralíu. Tómas er með víðtæka reynslu í umhverfismálum og opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði frá 2001 til 2008 sem heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík og sinnti þar margvíslegum verkefnum á sviði mengunarvarna. Síðastliðin 15 ár hefur hann starfað sem umhverfisstjóri hjá umhverfissviði Mosfellsbæjar.