Skóla- og frístundasvið hefur í samstarfi við Árósarborg gefið út fjóra bæklinga fyrir foreldra um málþroska og mál- og lesskilning barna.
Í bæklingunum fyrir foreldra er fjallað um leiðir til að örva málþroska og mál- og lesskilning barna frá fæðingu og til 12 ára aldurs, þ.e. þegar þau ljúka miðstigi grunnskóla.
Bæklingarnir, sem bera yfirskriftina Sameiginleg ábyrgð, miða jafnframt að því að efla foreldrasamstarf, en rannsóknir staðfesta að barn tekur meiri framförum og er líklegra til að ná betri árangri hvort heldur í leikskóla, grunnskóla eða frístundastarfi ef gott samstarf er á milli foreldra og starfsfólks.
Málörvun og mál- og lesskilningur er sameiginleg ábyrgð foreldra og skóla og margt má gera til styðja við mál og lestur barna og ungmenna til að úr verði skemmtilegt ferðalag.
- Málþroski - sameiginleg ábyrgð - upplýsingar fyrir foreldra barna á aldrinum 0-3 ára.
- Málþroski - sameiginleg ábyrgð - upplýsingar fyrir foreldra barna á aldrinum 3-6 ára.
- Málskilningur - sameiginleg ábyrgð - upplýsingar fyrir foreldra yngstu grunnskólabarnanna.
- Mál- og lesskilningur - sameiginleg ábyrgð - upplýsingar til foreldra barna á miðstigi.
Sjá einnig foreldravef Reykjavíkurborgar.