Ný umgjörð fyrir mannlíf í níu skrefum

Samgöngur Skipulagsmál

""

Göngugötuhluti Laugavegar, Skólavörðustígs og Vegamótastígs fær nýja umgjörð þar sem fagurfræði og auga fyrir sögunni er rauður þráður í gegnum alla hönnun. Forhönnun þriggja, þvegfaglegra teyma á verkefninu 9 skref var kynnt fyrir skipulags- og samgönguráði og borgarráði í vikunni. Tillögurnar voru unnar eftir forskrift og leiðbeiningum borgarhönnunar þar sem aðgengi allra, vörulosun, neyðarakstur og rými fyrir fólk var haft að leiðarljósi.

Úr forhönnun göngugötunnar má sjá innblástur frá persneskum árstíðagarði við Skólavörðustíg, flæðandi línur fyrir mannlíf og stemningu við gatnamót Laugavegar og Vegamótastígs, skemmtileg dvalarsvæði í Bankastræti og á Laugavegi vísar síldarbeinamynstur í klömbruhleðslur gömlu torfbæjanna.

Áhersla á gróður og lýsingu

Áhersla er í öllum skrefunum á gróður og dvalarsvæði en með ólíkum hætti eftir því sem hentar hverjum stað. Líka er leikið með lýsingu þar sem áhrifin minna á sindrandi stjörnur á einum stað og boðskapur í formi fljótandi texta finnst á öðrum stað.

Þarfir notenda og rekstraraðila hafa verið hafðar í fyrirrúmi í verkefninu öllu og hefur gott samráð átt sér stað við hagsmunaaðila göngugatnanna.  Þarna verður fólk í forgangi í nýju og öruggu umhverfi samþættrar göngugötu.

Nafnið 9 skref er beinlínis dregið af því að göngugötusvæðinu er skipt niður í níu skref. Tilgangurinn með því er að skipta niður framkvæmdum svo sem minnst rask hljótist af þeim. Áhersla er lögð á að skrefin verði unnin í sátt við nærumhverfið.

Hönnun verður samræmd til að mynda heildstætt útlit

Hvert teymi hefur lokið forhönnun á þremur skrefum og setja teymin sitt yfirbragð á hönnunina. Með því móti er hægt að virða staðaranda svæðisins og forðast einsleitni. Lögð verður áhersla á að samræma hönnunina svo heildstætt útlit myndist þó svæðin hafi hvert sín sérstöku einkenni og verður til að mynda hellulögnin  samræmd í allri göngugötunni. Götugögn, það er bekkir, ljósastaurar og fleira, verður einnig að hluta samræmt á öllu svæðinu.

Sums staðar er hugmyndin að stalla götuna næst inngöngum þar sem hallinn er mikill eins og við Skólavörðustíg og í Bankastræti. Það gerir það að verkum að aðgengi allra verður betra og svæði til útiveitinga verður meira.

Fjórtán teymi sóttust upphaflega eftir því að taka þátt í þessu verkefni. Teymin þrjú sem urðu fyrir valinu og hafa nú lokið forhönnun eru:

  1. Baldur Helgi Snorrason – arkitekt, Nils Wiberg – upplifunarhönnuður og Jóhann Sindri Pétursson – landslagsarkitekt. Skref: 4, 5, 7. Hluti Laugavegar og Bankastrætis. Gult svæði á skýringarmynd.
  2. Ragnhildur Skarphéðinsdóttir – landslagsarkitekt, Elín Hansdóttir – myndlistarmaður og  Kristján Kristjánsson – lýsingarhönnuður. Skref 1, 2, 3. Vegamótastígur og hluti Laugavegar. Rautt svæði á skýringarmynd.
  3. Karl Kvaran – arkitekt og skipulagsfræðingur, Lilja Kristín Ólafsdóttir – landlagsarkitekt og Sigurður Árni Sigurðsson – myndlistarmaður. Skref 6, 8, 9. Skólavörðustígur og hluti Laugavegar. Blátt svæði á skýringarmynd.

Eins og áður segir er forhönnun lokið og við tekur að útfæra hönnunina nánar þar sem áfram verður gætt að og rýnt í útfærslu á aðgengi fyrir alla í samráði við hagsmunasamtök. Þegar að framkvæmd kemur verður framkvæmt í litlum skrefum til að valda sem minnstu raski á þessum fjölförnu götum.

Regnboganum sem nú er á Skólavörðustíg verður fundinn annar staður og er leit hafin að nýju heimili.

Ítarefni

Kynning með mörgum myndum