Ný umferðarljós á Bústaðavegi við Efstaleiti

Samgöngur

""

Ný umferðarljós á gatnamótum Bústaðavegar og Efstaleiti verða gangsett á morgun, fimmtudaginn 20. febrúar, kl. 10.30. Þar til blikka þau með gulu ljósi.

Með nýju ljósunum er verið að auðvelda aðgang að og frá Efstaleiti, en við breytinguna má beygja frá Efstaleiti til vinstri inn á Bústaðaveg.

Einnig batnar öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, en lagður hefur verið nýr hjólastígur meðfram Bústaðavegi.