Á opnum kynningarfundi um fjárfestingu í Reykjavík, sem haldinn verður kl. 8.30 miðvikudaginn 15. apríl, mun Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fara í máli og myndum yfir þær framkvæmdir sem eru í deiglunni í Reykjavík. Sagt verður frá framgangi stórra verkefna hjá einkaaðilum, ríki og Reykjavíkurborg sem og nýrri erlendri fjárfestingu í borginni.
Farið verður yfir stóru myndina og í upptalningunni hér að neðan eru stærstu póstarnir. Eðlilega verður dvalið við helstu tíðindi og nýjungar.
- Hótel og ferðaþjónusta í Reykjavík – Umfang og uppbygging.
- Þekkingarþorpið í Vatnsmýrinni – Samstarf háskólanna, Landspítalans og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu.
- Samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni – Nýr tengipunktur.
- Austurhöfn – Þjónusta, verslun og íbúðabyggð.
- Iðnaðarsvæði – Gagnaver og græn fjárfesting.
- Faxaflóahafnir – Ný atvinnustarfsemi á hafnarsvæðum.
- Lóðir og nýjar íbúðir – Samstarf um þéttingu byggðar og nýju Reykjavíkurhúsin.
Dagur mun gefa góða yfirsýn um uppbygginguna í Reykjavík og útskýra áherslur og stefnu borgarinnar.
Fundurinn er haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn og hefst hann kl. 8.30 eins og áður segir. Boðið verður upp á létta morgunhressingu frá kl. 8.00 og gert er ráð fyrir að fundurinn verði búinn fyrir kl. 10.00.
Viðburðurinn á Facebook – Láttu gjarnan vita ef þú ætlar að mæta.