Næturstrætó byrjar aftur í Reykjavík  

Samgöngur

Strætisvagnar á biðstöð og fólk á leið í strætó.

Borgin gerir þjónustusamning við Strætó sem mun hefja akstur næturstrætó innan Reykjavíkurborgar 24. febrúar næstkomandi og aka samkvæmt áætlun. 

Reykjavíkurborg hefur gert þjónustusamning við Strætó um að hefja akstur næturstrætó eingöngu innan borgarinnar. Næturstrætó mun aka úr miðbæ Reykjavíkur samkvæmt tímaáætlun.  

Borgin er með þessu að svara ákalli um bættar samgöngur í miðbænum um helgar en ekki náðist samstaða í stjórn Strætó um að hefja aftur akstur næturstrætó á höfuðborgarsvæðinu. Því bar Reykjavíkurborg fram tillögu fyrir stjórn Strætó um þjónustu fyrir íbúa borgarinnar og bjóða upp á næturstrætó sem eingöngu gengur í Reykjavík. Stjórn Strætó samþykkti þessa tillögu en allur kostnaður vegna þjónustunnar mun falla á Reykjavíkurborg.  

Fjórar næturleiðir munu aka frá miðbænum og út í úthverfi Reykjavíkur, þ.e. Breiðholt, Úlfarsárdal, Norðlingaholt og Grafarvog 

  • Næturstrætó ekur úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugardags og sunnudags. 

  • Aðeins er hægt að taka næturstrætó á leið úr miðbænum en ekki til baka í átt að miðbænum. 

  • Vagnarnir aka ekki samkvæmt hefðbundinni tímatöflu. Eingöngu er gefinn upp brottfaratími úr miðbænum og vagnarnir aka inn í hverfin án þess að tímajafna. 

  • Viðskiptavinir sem ætla að nýta vagninn á miðri leið er bent á að fylgjast með staðsetningu vagna í rauntíma í Klapp-appinu eða inni á straeto.is 

Fargjöld í næturstrætó 

Stakt fargjald í næturstrætó er 1.100 kr. en það jafngildir tvöföldu fargjaldi. Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi en eftir sem áður geta handhafar mánaðar- og árskorta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Ekki verður hægt að greiða með greiðslukorti um borð í næturstrætó þar sem næturmiði er keyptur í gegnum Klapp greiðslukerfi. Jafnframt er hægt að borga með reiðufé.