N1 mun sjá Reykjavíkurborg fyrir raforku

Stjórnsýsla

Ljós í myrkri við Tjörnina.

Raforkukaup Reykjavíkurborgar munu færast til N1 Rafmagns ehf. um næstu áramót. Um er að ræða alla almenna raforkunotkun borgarinnar auk götulýsingar.

Kærunefnd útboðsmála úrskurðaði að Reykjavíkurborg skyldi bjóða út kaup á raforku og var það gert á Evrópska efnahagssvæðinu 24. maí síðastliðinn og í framhaldi af því einnig innanlands. Um er að ræða innkaup á um 46 gígavattstundum, sem er langstærsta útboð á raforku á almennum markaði þar til nú. Hingað til hefur Reykjavíkurborg keypt rafmagn af Orku náttúrunnar, dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur. 

Tilboð voru opnuð 30. júní og bárust fjögur tilboð. N1 Rafmagn ehf. átti lægsta tilboðið og hljóðaði það upp á 5,65 krónur á hverja kílóvattstund fyrir almenna notkun en 5,35 krónur fyrir götulýsingu. Þýðir það að N1 mun veita þjónustuna fyrir 257,5 milljónir króna á ári. Aðrir bjóðendur voru Orkusalan ehf., Orka náttúrunnar og Straumlind ehf. 

Tilboðið tæpum 20% undir núverandi orkuverði

Tilboð N1 Rafmagns ehf. var nokkuð yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 4,90 krónur fyrir almenna notkun og 4,65 krónur fyrir götulýsingu. Samkvæmt útboðslýsingu taldist tilboðið því óaðgengilegt en Reykjavíkurborg áskildi sér þó rétt til að taka tilboði yfir kostnaðaráætlun og var tilboð N1 Rafmagns ehf. tæpum 20% undir núverandi orkuverði. 

Samningurinn nær til allra raforkukaupa Reykjavíkurborgar sem bæði geta aukist og minnkað á tímabilinu, en gildistími samningsins verður frá 1. janúar 2023 til 31. desember 2025. Heimilt er að segja upp samningnum með þriggja mánaða fyrirvara tólf mánuðum eftir að hann er kominn á og hægt er að framlengja hann tvisvar um eitt ár í senn.