Mikil íbúðauppbygging á næstu árum

Atvinnumál Framkvæmdir

Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík - júlí 2022

2.536 íbúðir eru nú í byggingu í Reykjavík eftir því sem fram kemur í nýrri samantekt um uppbyggingu húsnæðis í borginni fyrri hluta ársins og fjölgaði þeim lítillega frá síðustu ársfjórðungssamantekt.

Á fyrstu sex mánuðum ársins var lokið við byggingu 532 íbúða og var rúmur helmingur þeirra á vegum húsnæðisfélaga eða undir merkjum hagkvæms húsnæðis. Byggt á upplýsingum framkvæmdaaðila um áætluð verklok er gert ráð fyrir að lokið verði við 750 íbúðir á seinni hluta þessa árs. Heildarfjöldi nýrra íbúða í ár yrði því 1.282 talsins sem er svipað og í fyrra þegar 1.252 íbúðir voru skráðar fullbúnar í fasteignaskrá hjá Þjóðskrá Íslands.

Reykvíkingum fjölgaði um 1.383 íbúar á fyrri hluta ársins og voru þeir 137.083 þann 1. júlí sl. Fjölgunin í Reykjavík er svipuð þeim fjölda og bjó í sveitarfélaginu Vogum á sama tíma.  

Umfangsmikil húsnæðisáætlun

Með húsnæðisáætlun heldur Reykjavíkurborg utan um upplýsingar á uppbyggingu húsnæðis í borginni allt frá fyrstu þróunarvinnu uppbyggingarsvæða til tilbúinna íbúða. Hér eru helstu tölur úr þeirri samantekt:

  • Á þróunarsvæðum: 8.600 íbúðir
  • Í skipulagsferli: 6.815 íbúðir
  • Í samþykktu deiliskipulagi: 5.714 íbúðir
  • Á framkvæmdastigi: 2.536 íbúðir

Samtals eru þetta rúmlega 23 þúsund íbúðir en til samanburðar eru í dag um 58 þúsund íbúðir í Reykjavík. Tölur í ársfjórðungssamantektinni miða við 1. júlí 2022.  Skoða Húsnæðisáætlun Reykjavíkur – yfirlit 2. ársfjórðungs 2022.

Helstu byggingarsvæðin

Íbúðir í byggingu eru taldar upp í samantektinni og finnast þær víða um borgina. Má þar nefna Héðinsreit, Steindórsreit, Vogabyggð. Bryggjuhverfi, Gufunes, Úlfarsárdal, Kirkjusand, Hlíðarenda, Hraunbæ, Grensásveg, Sogaveg og einnig kemur Hótel Saga ný inn á listann, en henni er verið að breyta í íbúðarhúsnæði.  Af þeim 2.536 íbúðum sem eru í byggingu eru 2.082 fyrir almennan markað, en 454 íbúðir eru á vegum húsnæðisfélaga.