Mengunarský í froststillum

Heilbrigðiseftirlit

Flugvél lendir í Vatnsmýri. Gul birta, vetrarsól, kalt og stilla.

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) mælist mjög hár í borginni í dag, 4. janúar, skv. mælingum í mælistöðinni við Grensásveg.  Klukkan 13:00 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 246,2 míkrógrömm á rúmmetra og var styrkurinn einnig yfir 200 míkrógrömmum kl. 11 og 12.

Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er að jafnaði mest á morgnana og um eftirmiðdaginn þegar umferð er þung. Þegar froststillur eru helst mengunarskýið þó lengur yfir borginni og gildi geta verið há stóran hluta úr degi. 

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg.  Efnið er þegar búið að fara þrisvar sinnum yfir klukkustundarmörkin. Svipuðu veðri er spáð næstu daga og því mögulegt að þetta ástand verði viðvarandi. 

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra en leyfilegt klukkustundargildi er 200 míkrógrömm á rúmmetra.  Fara má yfir sólarhringsheilsuverndarmörkin 7 sinnum á ári og klukkustundargildið 18 sinnum á ári skv. reglugerð. 

Hvatt til vistvænna samgöngumáta

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, vinna fjarvinnu, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðargatna. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu og óþægindum í lungum og öndunarvegi. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs, svifryks og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is.