Mánaleið, Sólarleið og Ketilshólmi

Samgöngur Skipulagsmál

""

Skipulags- og samgönguráð hefur samþykkt tillögu nafnanefndar um nöfn á reiðhjóla- og göngustígum í Reykjavík, eða svokölluðum lykilstígum.

Lykilstígarnir eru sex talsins og nefnast, Mánaleið, Sólarleið, Árleið, Kelduleið, Eyjaleið og Bæjarleið.

a) Mánaleið nefnist stígurinn meðfram Sæbraut.

b) Sólarleið – stígurinn sem liggur meðfram Ægisíðu í gegnum Fossvog, inn í Elliðaárdal.

c) Árleið – stígurinn í gegnum Elliðaárdal.

d) Kelduleið – stígurinn sem liggur meðfram Sæbraut, í gegnum Geirsnef og svo Vesturlandsveg inn í Mosfellsbæ.

e) Eyjaleið – stígurinn sem liggur frá Bryggjuhverfi, í gegnum Grafarvoginn inn í Mosfellsbæ meðfram sjó.

f) Bæjarleið – stígurinn frá Nauthólsvík, meðfram Öskjuhlíð og niður í miðbæ Reykjavíkur.

Sjá kort

Þá var samþykkt að nefna hólmann í Úlfarsá við Grænlandsleið Ketilshólma. Tilurð nafnsins er sú að Hólmfríður Larsen, sendi tölvupóst til Reykjavíkurborgar þar sem hún lagði til að „eyjan“ úti í ánni fengi nafnið Ketilsey, eftir föður sínum Katli Larsen. Ketill bjó að Engi við Vesturlandsveg og ræktaði upp „eyjuna“ og þótti afskaplega vænt um hana. Þar sem heitið Ketilsey er nú þegar til á Breiðafirði var samþykkt að hólminn fengi nafnið Ketilshólmi.  

Sjá kort